30. maí 2017

Kennileiti Reykjavíkur með rauð nef í rigningunni

Ungmennaráð UNICEF á Íslandi fór á stúfana í gær og skreytti ýmis kennileiti Reykjavíkur með rauðum nefjum. Tilefnið er dagur rauða nefsins sem haldinn verður þann 9. júní.

Ungmennaráð UNICEF á Íslandi fór á stúfana og skreytti ýmis kennileiti Reykjavíkur með rauðum nefjum. Tilefnið er dagur rauða nefsins sem haldinn verður þann 9. júní.

Vanda þurfti valið á styttum enda ekki öll nef á Reykjavíkursvæðinu innan seilingar. Þær styttur sem fengu að skarta rauðu nefi voru Björg C. Þorláksson í Odda, Tómas Guðmundsson við Reykjavíkurtjörn og Piltur og Stúlka í Hallargarðinum.

„Þetta gekk svakalega vel þrátt fyrir að veðrið væri að stríða okkur,“ sagði Anna Arnarsdóttir varaformaður ungmennaráðsins. „Það er búið að vera alveg geggjað því það eru allir búnir að taka svo vel á móti okkur, án djóks, alveg geggjað sko. Og við erum auðvitað að þessu til þess að hjálpa til við að fá fleiri til að verða heimsforeldrar og hjálpa börnum sem þurfa hjálp.“

„Já, við erum búin að fara út um allt, upp á RÚV, í Hörpuna og við fórum meira að segja í danskt varðskip hérna niðri við höfn og fengum að fara í beisli og setja UNICEF fánann á stefnið en myndin sem við tókum vistaðist ekki. En við fórum samt! Þetta er búið að vera ótrúlega skemmtilegt og við komum örugglega til með að endurtaka leikinn og taka yfir snapchattið hjá Vodafone á laugardaginn þannig að fylgist með – því við erum sko langt í frá að vera búin!“ sagði Einar Freyr fulltrúi ungmennaráðsins.

Dagur rauða nefsins nær hámarki í beinni útsendingu á RÚV þann 9. júní þar sem vel yfir 100 manns koma fram til að skemmta landsmönnum og um leið hjálpa börnum í neyð með því að hvetja fólk til að gerast heimsforeldrar UNICEF.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn