27. janúar 2014

KPMG á Íslandi styður hjálparstarf UNICEF á Filippseyjum

Tveir og hálfur mánuður er nú liðinn frá því að fellibylurinn Haiyan olli gífurlegri eyðileggingu á Filippseyjum. Í síðustu viku afhenti framkvæmdastjóri KPMG á Íslandi framkvæmdastjóra UNICEF hér landi alls 900.000 krónur til hjálparstarfs UNICEF á hamfarasvæðinu.

Um miðjan desember stóð KPMG á Íslandi fyrir uppboði og almennri söfnun meðal starfsmanna til styrktar hjálparstarfi fyrir bágstödd börn á Filippseyjum. Uppboðið var óhefðbundið og munirnir ekki dæmigerðar vörur sem ganga kaupum og sölu. Sem dæmi var boðið upp málverk sem málað var af hópi starfsmanna, einkabílastæði í bílageymslu félagsins, leiðsögn um Akureyri og fleira skemmtilegt – enda uppboðið fyrst og fremst skemmtun.

Jafnframt fór fram hefðbundin söfnun þar sem starfsmenn gátu lagt fjárframlög af hendi.

Hreint vatn, heilsugæsla og barnavernd

Söfnunin tókst með eindæmum vel og söfnuðu starfsmenn sem eru um 220 talsins um 450.000 krónum á stuttum tíma. KPMG ehf. lagði síðan fram jafnháa upphæð þannig að heildarframlag KPMG til UNICEF á Íslandi er 900.000 kr. UNICEF mun nú sjá um að koma aðstoðinni til réttra aðila á Filippseyjum.

Alls hefur KPMG safnað á heimsvísu um einni milljón Bandaríkjadollara til styrktar uppbyggingarstarfinu á Filippseyjum.

„Það er einstaklega gaman hvað viðbrögð starfsmanna voru góð við þessu uppboði og söfnuninni og það er mjög ánægjulegt að vera hluti af þessu alþjóðlega samfélagsverkefni okkar í KPMG um allan heim,“ segir Jón S. Helgason, framkvæmdastjóri KPMG.

„Við erum KPMG og því góða fólki sem þar vinnur hjartanlega þakklát fyrir ómetanlegt framlag sitt. Það mun svo sannarlega koma verulega til góða og nýtast sem dæmi til að tryggja börnum hreint vatn og hreinlætisaðstöðu, útvega þeim heilsugæslu, sinna barnavernd og koma börnum aftur í skóla,“ segir Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn