15. maí 2020

Krakkaraddir í kófinu

„Að jörðinni líði betur.“ Svona svaraði þrettán ára ungmenni spurningunni um hvað væri gott við kórónaveiruna í nýlegri spurningakönnun UNICEF á Íslandi. Börn hafa einstakt lag á því að sjá heiminn í öðru og skýrara ljósi en við fullorðna fólkið.

Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, skrifar:

„Að jörðinni líði betur.“ Svona svaraði þrettán ára ungmenni spurningunni um hvað væri gott við kórónaveiruna í nýlegri spurningakönnun UNICEF á Íslandi. Börn hafa einstakt lag á því að sjá heiminn í öðru og skýrara ljósi en við fullorðna fólkið. Er ekki einmitt verið að gefa okkur einstakt tækifæri til að endurstilla heiminn svo jörðinni – og okkur sem búum á henni – líði betur? Börn hafa sýn og skoðanir á heiminum sem þau búa í og við þurfum að hlusta á þau. Rétt eins og við hafa þau upplifað óvissu, kvíða, ótta – og ofbeldi – sem ástandið vegna COVID-19 hefur magnað upp.

„Mér líður illa, ég er með kvíða og þunglyndi yfir öðrum hlutum og COVID-19 er að valda mér meiri kvíða,“ svaraði 14 ára ungmenni í spurningakönnuninni. Við vitum að þessi vanlíðan er til staðar. Hlustum. Það þarf að bregðast strax við og grípa viðkvæm börn og ungmenni áður en illa fer – ekki síðar. Stjórnvöld þurfa að beina sjónum að virkni og andlegri heilsu barna nú þegar þjóðfélagið þiðnar og gera breytingar til langframa. UNICEF leggur kapp á það í sinni vinnu að öll börn njóti virðingar og réttinda – og að á þau sé hlustað.

Staðan nú er vissulega erfið en hún gefur okkur samt sem áður tækifæri til að huga betur að þörfum barna og auka þátttöku þeirra. UNICEF leggur áherslu á að stjórnvöld um allan heim meti hagsmuni barna í ákvörðunum sínum og aðgerðum og minnir á að öll börn njóta sömu réttinda Barnasáttmálans án mismununar. Á Ítalíu, í Indónesíu og á Íslandi – alls staðar er hægt að snúa aftur sterkari sem samfélag og betri jarðarbúar. Ég tek mér orð annars íslensks unglings að lokum: „Langar bara að segja (ef einhver sér þetta) ég vona virkilega að allt gangi vel hjá þér, rétt eins og hjá mér og vonandi verður þetta búið bráðum.“

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu föstudaginn 15.maí 2020.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn