30. maí 2017

Lag Kött grá pjé fyrir dag rauða nefsins kynnt í dag

Lagið ber heitið Opnum dyrnar og fjallar meðal annars um að okkur beri skylda til að leggja okkar af mörkum til að aðstoða þau sem virkilega þurfa á því að halda.

31. maí 2017

Lag dags rauða nefsins í ár er samið og flutt af rapparanum Atla Sigþórssyni, sem er betur þekktur undir listamannsnafninu Kött Grá Pjé. Hefð hefur skapast fyrir því að kynna nýtt lag í aðdraganda dags rauða nefsins hjá UNICEF. Átakið nær hámarki á RÚV föstudaginn 9. júní en lagið sjálft fer í spilun í dag.

Lagið ber heitið Opnum dyrnar en höfundar þess ásamt Kött Grá Pjé eru þau Karó, Kristján Eldjárn og Magnús Öder. Textann gerði Kött Grá Pjé síðan í samstarfi við Karó sem syngur viðlagið. Textinn fjallar meðal annars um það hversu gott margir hafi það í raun hér á landi og að hollt sé að líta í kringum sig og átta sig á því í hversu erfiðum aðstæðum fólk sé um allan heim. Okkur beri skylda til að leggja okkar af mörkum til að aðstoða þau sem virkilega þurfi á því að halda.

Allir sem koma að laginu gera það í sjálfboðavinnu. Kristján Eldjárn úr hljómsveitinni Sykur samdi undirspilið en Magnús Öder og Styrmir Hauksson sáu um upptökustjórn lagsins og hljóðblöndun.

„Við hjá UNICEF erum ákaflega þakklát öllu þessu góða fólki. Það er ómetanlegt að fá þau til liðs við okkur við að vekja athygli á degi rauða nefsins og baráttu heimsforeldra fyrir betri heimi fyrir öll börn,“ segir Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

Kött Grá Pjé fylgir í fótspor margra þjóðþekktra listamanna, en lagið er það sjöunda sem samið er fyrir UNICEF af þessu tilefni.

Á síðasta degi rauða nefsins gerðu Reykjavíkurdætur og Pollapönk lag dagsins sem bar heitið Tabula rasa. Þar áður lagði FM Belfast UNICEF lið með laginu Öll í kór og árin þar á undan Páll Óskar Hjálmtýsson og Redd Lights með laginu Megi það byrja með mér, Retro Stefson með laginu Dagur rauða nefsins og Ljótu hálfvitarnir með laginu Hættu þessu væli. Baggalútur á hins vegar heiðurinn af fyrsta laginu sem samið var fyrir UNICEF á Íslandi og bar heitið Brostu.

Dagur rauða nefsins er langstærsti viðburður ársins hjá UNICEF á Íslandi. Hann nær hámarki í beinni útsendingu á RÚV föstudaginn 9. júní þar sem grínistar, leikarar, fjölmiðlafólk og tónlistarmenn búa til ógleymanlegt kvöld og skora á áhorfendur að hjálpa börnum og gerast heimsforeldrar UNICEF.

Heimsforeldrar styðja í hverjum mánuði hjálparstarf UNICEF í þágu barna um allan heim. Þeir styðja baráttu UNICEF fyrir öll heimsins börn – hvar sem þau búa og hver sem þau eru. Á degi rauða nefsins síðastliðin ár hafa þúsundir Íslendinga bæst í hóp heimsforeldra UNICEF.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn