09. febrúar 2017

Landsbankinn verðlaunar framúrskarandi fyrirtæki með sönnum gjöfum UNICEF

Í lok janúar var listi yfir þau 624 fyrirtæki sem hlutu viðurkenningu Creditinfo fyrir framúrskarandi árangur í rekstri kynntur. Þar sem meira en helmingur fyrirtækjanna eiga í viðskiptasambandi við Landsbankann sendi bankinn öllum fyrirtækjunum hamingjuóskir með góðan árangur og gaf í þeirra nafni sannar gjafir hjá UNICEF fyrir hvorki meira né minna en þrjár milljónir króna.




9. febrúar 2017

Í lok janúar var listi yfir þau 624 fyrirtæki sem hlutu viðurkenningu Creditinfo fyrir framúrskarandi árangur í rekstri kynntur. Þar sem meira en helmingur fyrirtækjanna eiga í viðskiptasambandi við Landsbankann sendi bankinn öllum fyrirtækjunum hamingjuóskir með góðan árangur og gaf í þeirra nafni sannar gjafir hjá UNICEF fyrir hvorki meira né minna en þrjár milljónir króna.

„Við erum innilega þakklát fyrir þetta ótrúlega rausnarlega framlag,“ segir Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

„Það er gleðilegt til þess að vita að börn vítt og breitt um heiminn fái nú hjálpargögn sem gefin voru í nafni fjölmargra fyrirtækja á Íslandi. Við þökkum Landsbankanum hjartanlega fyrir og óskum fyrirtækjunum öllum sem fengu viðurkenninguna til hamingju með árangurinn.“

Sannar gjafir UNICEF eru lífsnauðsynleg hjálpargögn fyrir bágstödd börn og er ætlað að bæta líf barna um allan heim.

Að sögn Völu Karenar Viðarsdóttur, fjáröflunarfulltrúa hjá UNICEF á Íslandi, voru hjálpargögn af öllum stærðum og gerðum í sendingunni frá Íslandi. Í henni voru:

  • 95 moskítónet sem gegna lykilhlutverki í baráttunni gegn malaríu
  • 1.070 hlý teppi fyrir börn á flótta
  • 8.550 skammtar af næringardufti fyrir vannærð börn
  • 8.770 pakkar með námsgögnum
  • 9.030 skammtar af vítamínbættu jarðhnetumauki fyrir vannærð börn
  • 12.550 skammtar af bóluefnum gegn mænusótt og mislingum
  • 49.000 skammtar af ormalyfi sem vinnur bug á sníkjudýrasýkingum
  • 95.000 vatnshreinsitöflur


„Við höfum aldrei fengið jafnstóra pöntun af sönnum gjöfum og erum hæstánægð með þetta,“ segir Vala.

„Gjöfunum verður nú dreift til barna og fjölskyldna þeirra með milligöngu birgðastöðvar UNICEF. Framtakið hjá Landsbankanum er frábært og mun sannarlega koma í afar góðar þarfir.“

Fleiri
fréttir

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira

19. apríl 2024

Þrjú börn létust í árásum í Úkraínu
Lesa meira

17. apríl 2024

Börn í Réttindaskólum sýna betri skilning á réttindum sínum og Barnasáttmálanum
Lesa meira
Fara í fréttasafn