11. janúar 2005

Landssöfnun hefst

Í dag, þriðjudag, hófst landssöfnun þriggja sjónvarpsstöðva, þriggja verslunarmiðstöðva, níu útvarpsstöðva, þriggja dagblaða, listamanna, fyrirtækja og almennings til hjálpar þeim sem lifðu af hamfarirnar í Asíu. Söfnunarfénu verja fimm mannúðarsamtök; Barnaheill - Save the Children, Hjálparstarf kirkjunnar, Rauði kross Íslands, SOS barnaþorp og UNICEF - Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna.

Í dag, þriðjudag, hófst landssöfnun þriggja sjónvarpsstöðva, þriggja verslunarmiðstöðva, níu útvarpsstöðva, þriggja dagblaða, listamanna, fyrirtækja og almennings til hjálpar þeim sem lifðu af hamfarirnar í Asíu. Söfnunarfénu verja fimm mannúðarsamtök; Barnaheill - Save the Children, Hjálparstarf kirkjunnar, Rauði kross Íslands, SOS barnaþorp og UNICEF - Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Fjármunum verður varið til neyðaraðstoðar nú, og uppbyggingar á næstu árum. Frú Vigdís Finnbogadóttir er verndari söfnunarinnar. Aldrei fyrr hafa svo margir aðilar á Íslandi tekið höndum saman um neyðarhjálp til útlanda.

Söfnunin hefst í dag, þriðjudaginn 11. janúar og nær hámarki með sameiginlegri beinni útsendingu Ríkissjónvarpsins, Stöðvar 2 og Skjás eins laugardagskvöldið 15. janúar.

Gefst landsmönnum kostur á að hringja í söfnunarsíma alla þessa viku. Framlög eru skuldfærð á símreikning handhafa.

Söfnunarsímanúmerin eru:

901 1000 sem gefur 1.000 kr.

901 3000 sem gefur 3.000 kr.

901 5000 sem gefur 5.000 kr.

Á föstudag og laugardag verður skemmtidagskrá í Kringlunni, Smáralind og Glerártorgi, Akureyri. Hún stendur frá kl. 14-18 á föstudag og 12-18 á laugardag. Þá ganga sjálfboðaliðar um þessa daga og safna í bauka.

Á laugardag munu þekktir einstaklingar í samfélaginu sitja við símann frá kl. 14-21:30 og taka við stærri framlögum. Númerið er 755 5000.

UNICEF hvetur einstaklinga og fyrirtæki til að leggja sitt af mörkum til söfnunarátaksins.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn