09. nóvember 2004

Leikmenn Manchester Utd tala fyrir hönd barna í herferð UNICEF

Stjörnuleikmenn Manchester United fótboltafélagsins og framkvæmdastjóri þeirra ljá málefnum barna rödd sína í nýrri sjónvarpsherferð UNICEF. Hin 30 sekúndna löngu myndskilaboð hvetja almenning til þess að styðja við starf UNICEF í baráttunni gegn HIV/alnæmi, mansali og misnotkun barna og stuðningi við menntun stúlkna.

Stjörnuleikmenn Manchester United fótboltafélagsins og framkvæmdastjóri þeirra ljá málefnum barna rödd sína í nýrri sjónvarpsherferð UNICEF.

Hin 30 sekúndna löngu myndskilaboð hvetja almenning til þess að styðja við starf UNICEF í baráttunni gegn HIV/alnæmi, mansali og misnotkun barna og stuðningi við menntun stúlkna.
Meðal þeirra mörgu leikmanna sem koma fram í herferðinni eru framkvæmdastjórinn Alex Ferguson, leikmennirnir Rio Ferdinand, Ryan Giggs, Mikael Silvestre, Ole Gunnar Solskjær, Quinton Fortune og Cristiano Ronaldo.

„Þessi gerð stuðnings frá leikmönnunum sem hluti langvarandi samstarfs félagsins við UNICEF er gríðarlega mikilvæg og áhrifamikil. Málefnin sem leikmennirnir vekja athygli á eru í forgangi í starfi UNICEF,“ sagði Lara Schlotterbeck, kynningarfulltrúi UNICEF.

Myndskilaboðunum verður dreift til landsnefnda UNICEF um allan heim. Tvö skilaboðanna, frá Mikael Silvestre og Cristiano Ronaldo, eru töluð á móðurmáli þeirra til þess ná til frönsku- og portúgölskumælandi áhorfenda.

Samstarf Manchester United og UNICEF (United for UNICEF) hófst árið 1999 og hefur safnað meira en 125 milljónum íslenskra króna til handa verkefnum UNICEF með börnum. Manchester United endurnýjaði skuldbindingu sína við UNICEF árið 2003 og mun félagið nú starfa að þriggja ára herferð gegn misnotkun barna.

Sjá má myndskilaboð leikmanna og framkvæmdastjóra Manchester United hér.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn