UNICEF leitar að ábyrgu, kraftmiklu og jákvæðu fólki sem vill leggja málstað samtakanna lið í október og nóvember. Starfið felst í því að ganga í hverfi á höfuðborgarsvæðinu, kynna starf UNICEF, og bjóða fólki að skrá sig sem mánaðarlega styrktaraðila og styðja þannig fjölda þurfandi barna um allan heim. Vinnutíminn er á eftirmiðdögum og á kvöldin, þrjá til fjóra daga vikunnar eftir samkomulagi.
Við bjóðum starf með tilgang. Á móti vonumst við til að fá viðbrögð frá fólki með ríka réttlætiskennd og sannfæringarkraft, sem á auðvelt með að tengjast fólki og miðla mikilvægum málstað til annarra.
Áhugasamir sendi ferilskrá á anna@unicef.is. Nánari upplýsingar í síma 552 6304.
