13. nóvember 2018

Lengi býr að fyrstu gerð

Hver er mikilvægasti hlutur í lífi barna okkar? Hvaða fyrirbæri er forsendan fyrir því að barn megi dafna og þroskast á sem bestan hátt? Færa má sterk rök fyrir því að það sé sjálfur heilinn. Það stórkostlega og dularfulla líffæri.

Hver er mikilvægasti hlutur í lífi barna okkar? Hvaða fyrirbæri er forsendan fyrir því að barn megi dafna og þroskast á sem bestan hátt? Færa má sterk rök fyrir því að það sé sjálfur heilinn. Það stórkostlega og dularfulla líffæri.

Rannsóknir hafa leitt í ljós að gen okkar séu einungis grunnteikning að lífinu. Jákvæðar upplifanir og reynsla á fyrstu árum æfinnar móta heilann og búa til tengingar sem við notum til að rata um lífsins ólgusjó.

Á þessum fyrstu árum geta heilar barna myndað a.m.k. eitt þúsund taugatengingar á hverri sekúndu. Þessar tengingar renna stoðum undir framtíð hvers barns. Segja má því að fyrstu árin í lífi barns - oft er talað um fyrstu þúsund dagana - séu einstakt tækifæri til að móta heilsteyptan einstakling. Að fara á mis við jákvæða reynslu og upplifun á þessum tíma getur verið óafturkræfanlegt.

Það er nefninlega svo að hundruðir milljóna ungra heila á þessari jörð verða fyrir alvarlegum skaða vegna lélegrar næringar, vegna ofbeldis og mengunar og vegna skorts á örvun. Það er skaði okkar allra, það skaðar framtíð okkar og barna okkar. Mikilvægasta verkefni hvers samfélags ætti því að vera að skapa aðstæður fyrir heilbrigðan heilaþroska barna frá fyrstu augnablikum í lífi þeirra.

Barn sem fer á mis við heilaþroska í frumbernsku er líklegra til að ganga verr í skóla og afla minni tekna síðar á lífsleiðinni, sem getur skapað erfiðleika bæði fyrir einstakling og samfélag. Fjárfesting og áhersla samfélaga á heilbrigðan þroska ungbarna hefur því marga og ótvíræða kosti. Rannsóknir leiða það skýrt í ljós. Sem dæmi má nefna að fjárfesting ríkja í stuðningsaðgerðum sem eru sérstaklega miðaðar að fyrstu árum af ævi barns hafa minnkað tekjubil samfélaga um meira en 13%. Einnig hefur komið í ljós að þau ríki sem stuðla ekki sérstaklega að næringu, vernd og örvun yngstu barnanna endi á því að eyða 2-3 sinnum meira fé í heilsugæslu- og menntaverkefni er fram líða stundir.

Þegar heilar ungra barna ná ekki að þroskast að fullu í bernsku, bregðumst við sem samfélag og viðhöldum neikvæðri þróun mismunar og ójafnræðis, því flest þau börn sem fara á mis við heilaþroska er að finna á meðal hinna fátækustu og jaðarsettustu. Um mikla hnattræna hagsmuni er að ræða, nær um helmingur barna yngri en fimm ára í lágtekju- og millitekjuríkum heimsins eiga það á hættu að ná ekki að þroska hæfileika sína til fulls vegna þess að þau eru illa nærð, þau skortir örvun eða búa við mengun og/eða ofbeldi. Slíkir einstaklingar finnast þó í öllum ríkjum. Einnig hér á landi.

Ofbeldi, mengun, og léleg næring eru vágestir sem samfélag okkar er meðvitað um og berst gegn, þó ávallt megi betur fara. Við megum hins vegar aldrei gleyma örvuninni og lífsnauðsynlegu mikilvægi tengslamyndunar barns og aðstandenda þess. Að tala, syngja, snerta og leika við barn geta virðst of einfaldar lausnir, en þær eru hins vegar undirstaðan að góðu lífi og heilbrigðu samfélagi.

Vegna þessa hefur UNICEF hafið alþjóðlegt átak undir myllumerkinu #EarlyMomentsMatter. Átakið hvetur ríki heims til að fjárfesta í verkefnum sem gagnast ungbörnum og þróar efni sem nýst getur foreldrum í umönnun ungra barna. Nú hafa Heilsugæslan, Embætti landlæknis og UNICEF á Íslandi einnig tekið höndum saman og hafið vitundarvakningu um mikilvægi tengslamyndunnar milli foreldra og barns. Þessi vitundarvakning felur meðal annars í sér útgáfu á fræðsluefni og veggspjaldi með ráðum um þroska og ummönnun barna. Á veggspjöldunum, sem hanga munu uppi á öllum heilsugæslustöðvum og víðar hér á landi, má finna einföld en bráðnauðsynleg skilaboð fyrir verðandi og nýja foreldra. Þau skilaboð minna okkur á gömul sannindi, að lengi býr að fyrstu gerð. Það eru einföldustu og mikilvægustu skilaboðin í lífi okkar allra.

Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn