10. júní 2011

Líf og fjör á Austurvelli: Salvör Nordal fékk fyrstu skýrsluna afhenda

Það var líf og fjör á Austurvelli í hádeginu þegar fulltrúar úr stjórnlagaráði voru ausnir hugmyndum frá ungmennum - í orðsins fyllstu merkingu! Salvör Nordal tók við skýrslu með niðurstöðum af þingi ungmennaráða sem haldið var í vor.

Það var líf og fjör á Austurvelli í hádeginu þegar fulltrúar úr stjórnlagaráði voru ausnir hugmyndum frá ungmennum - í orðsins fyllstu merkingu! Salvör Nordal, formaður stjórnlagaráðs, tók við skýrslu með niðurstöðum af þingi ungmennaráða sem haldið var í vor undir merkjunum Stjórnlög unga fólksins og var samstarfsverkefni UNICEF á Íslandi, umboðsmanns barna og Reykjavíkurborgar.

Með þessu gefst stjórnlagaráði einstakt tækifæri til að kynna sér sjónarmið ungmenna á aldrinum 13-18 ára við endurskoðun stjórnarskrárinnar.

Helstu niðurstöður skýrslunnar er að finna hér.

Eins og sjá má af myndunum tóku glimmerskreyttar laufsugur við gestum á Austurvelli. Þær voru fylltar með litríkum miðum með athugasemdum og ályktunum úr skýrslunni.

Þegar formaður stjórnlagaráðs hafði tekið við skýrslunni voru laufsugurnar stilltar á ... útblástur!

Það er von ungmennanna að útblásturinn þeirra verði stjórnlagaráðsfólki innblástur við endurskoðun stjórnarskrárinnar.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn