07. desember 2005

Lilja Eyþórsdóttir veitir UNICEF styrk

Lilja Eyþórsdóttir veitti UNICEF styrk í dag að verðmæti 57.000 krónum og mun styrkurinn renna til menntunar stúlkna. Lilja afþakkaði blóm og gjafir í afmælisveislu sinni en óskaði í staðinn eftir því að þeir sem vildu gætu lagt 500 til 1000 kr inn á reikning til styrktar UNICEF.

Lilja Eyþórsdóttir veitti UNICEF styrk í dag að verðmæti 57.000 krónum og mun styrkurinn renna til menntunar stúlkna. Lilja afþakkaði blóm og gjafir í afmælisveislu sinni en óskaði í staðinn eftir því að þeir sem vildu gætu lagt 500 til 1000 kr inn á reikning til styrktar UNICEF. Mágkona Lilju, Eteri Gvazava óperusöngkona, og Jónas Ingimundarson, píanóleikari, héldu tónleika fyrir afmælisgesti í veislunni.
Lilja vill með þessum styrk hvetja aðra áfram á sömu braut og kann UNICEF henni bestu þakkir fyrir þetta glæsilega framtak.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn