18. nóvember 2013

Lindex á Íslandi styrkir neyðaraðgerðir UNICEF um eina milljón króna

Lindex á Íslandi hefur styrkt hjálparstarf UNICEF fyrir börn á Filippseyjum um hvorki meira né minna en eina milljón króna. Eins og varla hefur farið framhjá neinum ríkir nú sár neyð á Filippseyjum í kjölfar þess að sögulega öflugur fellibylur gekk yfir landið um síðustu helgi. Mikilvægt er að ná til nauðstaddra barna sem allra fyrst.

„Það er sárt að horfa upp á þá gríðarlegu neyð sem blasir við börnum á Filippseyjum um þessar mundir og við viljum leggja okkar af mörkum,“ segir Lóa Dagbjört Kristjánsdóttiur, annar eiganda Lindex á Íslandi.

Lóa Dagbjört segir einnig að með þessu vilji verslunin taka áskorun íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu um að fólk leggi neyðarsöfnun UNICEF lið. Lindex á Íslandi taki þeirri áskorun og skori jafnframt á önnur fyrirtæki í landinu að leggja sín lóð á vogarskálarnar.Brýn þörf er á stuðningi við hjálparstarfið

„UNICEF reiðir sig alfarið á frjáls framlög og því skiptir velvild sem þessi svo miklu máli,“ segir Stefán Ingi Stefánsson framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi

Fyrr á árinu skrifaði Lindex á Íslandi undir samning við UNICEF um stuðning fyrirtækisins við uppbyggingu menntunar í Vestur-Afríkuríkinu Búrkína Fasó. Samningurinn er til fjögurra ára og nemur stuðningur Lindex á Íslandi tíu milljónum yfir tímabilið.
„Það er brýn þörf á stuðningi við hjálparstarf okkar á Filippseyjum um þessar mundir og við erum eigendum Lindex á Íslandi afar þakklát fyrir þeirra rausnarlega framlag,“ segir Stefán Ingi Stefánsson framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. „UNICEF reiðir sig alfarið á frjáls framlög og því skiptir velvild sem þessi svo miklu máli.“

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn