08. september 2018

Loftslagsbreytingar bitna verst á börnum

Öfgafullt veðurfar – flóð, fellibylir, skógareldar, þurrkar og hitabylgjur - er áþreifanleg vísbending um þann heim sem við erum að skapa fyrir komandi kynslóðir. UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hefur miklar áhyggjur af því að ofsaveður sé að verða tíðara og að loftslagsbreytingar muni hafa alvarlegar afleiðingar á börn um allan heim.

Öfgafullt veðurfar – flóð, fellibylir, skógareldar, þurrkar og hitabylgjur - er áþreifanleg vísbending um þann heim sem við erum að skapa fyrir komandi kynslóðir. UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hefur miklar áhyggjur af því að ofsaveður sé að verða tíðara og að loftslagsbreytingar muni hafa alvarlegar afleiðingar á börn um allan heim.

Áhrif loftslagsbreytinga á börn og réttindi þeirra

Loftslagsbreytingar hafa nú þegar mikil áhrif á líf barna og á réttindi þeirra. Börn eru þau berskjölduðustu og þau sem hnattræn hlýnun bitnar hvað verst á.

Á síðustu mánuðum hefur stór hluti heimsins upplifað hitabylgjur, þurrka, skógarelda, flóð og aurskriður. Hamfarirnar hafa valdið miklu manntjóni og lífsviðurværi heilu samfélaganna eyðilagst. Þegar uppskera brestur, heimili og skólar eyðileggjast, vatnsból þurrkast út eða blandast menguðu vatni, eru börn í hættu. Hætta er á útbreiðslu banvænna sjúkdóma, á borð við malaríu og niðurgangspestir, eða alvarlega vannæringu, og menntun barna er í húfi.

Nú fer fellibylatímabilið að skella á í Mið-Ameríku og Karíbahafinu, á eyjum sem ekki hafa náð að byggja sig upp eftir eyðilegginguna af völdum Irmu á síðasta ári, en Irma er öflugasti fellibylur sem mælst hefur á Atlantshafi. Svo miklar og tíðar náttúruhamfarir reyna einnig mikið á getu ríkisstjórna og hjálparsamtaka til að veita neyðaraðstoð.

UNICEF hvetur ríkisstjórnir um allan heim og alþjóðasamfélagið að bregðast við áður en það verður allt of seint. Aðgerðaráætlun UNICEF, Unless we act now, má nálgast hér.

Fræðslumynd UNICEF á Íslandi og Ævars vísindamanns á netinu

Þó að verkefnið virðist æðistórt og erfitt að útskýra þá getum við gert svo margt til að passa betur uppá jörðina, fyrir okkur sjálf og komandi kynslóðir. UNICEF á Íslandi fékk Ævar Þór Benediktsson (Ævar vísindamann) með sér í lið til að útskýra hvað það er sem veldur loftslagsbreytingum og hvað börn og fullorðnir geti gert til að sporna við þeim.

Í myndinni Endurnýta, endurvinna, eyða minna kannar Ævar hvaða áhrif loftslagsbreytingar hafa á réttindi barna og hvað almenningur geti gert til að hugsa betur um umhverfið. Myndin er sýnd í grunnskólum um allt land sem hluti af UNICEF-hreyfingunni og er tilvalin til að horfa á með fjölskyldunni. Myndin er aðgengileg á netinu og má sjá hér.

Skilaboð okkar í plastlausum september (og alla aðra mánuði líka að sjálfsögðu) eru einföld:

Endurvinna, endurnýta, eyða minna!

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn