01. nóvember 2004

Menntamálaráðherra heimsækir vinnusmiðju UNICEF

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri heimsóttu UNICEF við lok vinnusmiðju í gerð einnar-mínútu-myndbanda. Þau 20 ungmenni frá öllum Norðurlöndunum sem sóttu vinnusmiðjuna sýndu gestunum afrakstur vinnu sinnar og ræddu um þau málefni sem brenna mest á ungu fólki í dag.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri heimsóttu UNICEF við lok vinnusmiðju í gerð einnar-mínútu-myndbanda.
Þau 20 ungmenni frá öllum Norðurlöndunum sem sóttu vinnusmiðjuna sýndu gestunum afrakstur vinnu sinnar og ræddu um þau málefni sem brenna mest á ungu fólki í dag.
Menntamálaráðuneytið styrkti vinnusmiðjuna og Ríkisútvarpið kom að henni í gegnum aðild sína að Menningarsjóði Evrópu sem er einn þriggja aðila sem styrkja gerð einnar mínútu
myndbandanna á alþjóðlega vísu. Hinir tveir styrktaraðilarnir eru Sondberg stofnunin í Hollandi og UNICEF – Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna.

Sjáið myndböndin sem unnin voru á Íslandi http://www.theoneminutesjr.org

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn