16. ágúst 2011

Metþátttaka í áheitahlaupum í Reykjavíkurmaraþoni

Aldrei hafa fleiri hlaupið til styrktar UNICEF á Íslandi en hafa nú skráð sig til þátttöku í Reykjavíkurmaraþoninu sem fram fer á laugardag. Skráning er enn í fullum gangi og fer fram á www.hlaupastyrkur.is. Yfir 80 manns hafa þegar skráð sig fyrir UNICEF!

Aldrei hafa fleiri hlaupið til styrktar UNICEF á Íslandi en hafa nú skráð sig til þátttöku í Reykjavíkurmaraþoninu sem fram fer á laugardag. Skráning er enn í fullum gangi og fer fram á www.hlaupastyrkur.is.

Öll áheit til UNICEF munu renna beint til neyðaraðgerða samtakanna í Austur-Afríku. Ástandið úti versnar enn og því er málefnið afar brýnt. Framlögum úr neyðarsjóði UNICEF verður meðal annars varið til kaupa á lífsnauðsynlegum bóluefnum og sérstöku vítamínbættu jarðhnetumauki fyrir alvarlega vannærð börn.

Allir hlauparar geta valið að tengja sig tilteknu góðgerðarfélagi, hvetja svo vini og vandamenn til að heita á sig og renna áheitin til félagsins. Fjöldi þeirra sem ákveðið hefur að hlaupa til styrktar aðgerðunum í austurhluta Afríku er núna kominn yfir 80!

Við erum afar þakklát fyrir þennan mikla meðbyr.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn