UNICEF gegnir mikilvægu hlutverki þegar náttúruhamfarir skella á, enda eru börn þau allra berskjölduðustu. UNICEF er á vettvangi á Filippseyjum og mikill viðbúnaður var á staðnum áður en Mangkhut reið yfir. Í forgangi var að tryggja öryggi og heilsu barna og útvega hreint drykkjarvatn, hreinlætisaðstöðu og næringu. Einnig var lögð áhersla á að tryggja að börn skiljist ekki að frá foreldrum sínum.
UNICEF vinnur náið með yfirvöldum Filippseyja að því að veita þeim sem komist hafa í skjól í hjálparmiðstöðvar hreint vatn, heilbrigðisþjónustu og hreinlætisaðstöðu. Tugþúsundir skóla eyðilögðust í storminum og ljóst er að næstu verkefni verða að tryggja áframhaldandi menntun barna á skólaaldri með því að setja upp bráðabirgða námssvæði og dreifa skólagögnum.
Snögg viðbrögð eru lífsnauðsynleg þegar hamfarir sem þessar dynja á. Framlög heimsforeldra UNICEF gera samtökunum kleift að vera ávallt viðbúin og bregðast hratt og örugglega við líkt og nú. Á Íslandi eru um 27.000 heimsforeldrar sem með mánaðarlegum framlögum sínum tryggja að UNICEF geti veitt hjálp þar sem neyðin er mest hverju sinni.
Fellibylurinn Mangkhut var af stærðargráðunni 5 og er sá stærsti sem myndast hefur á Filippseyjum síðan fellibylurinn Hayian reið yfir árið 2013. Hayian eyðilagði milljónir heimila og tók þúsundir lífa.
„Starfsfólk UNICEF hefur unnið náið með ríkisstjórninni til að tryggja að neyðaraðstoð berist hratt til barna á svæðinu. Reynsla UNICEF er dýrmæt en við höfum verið með langa viðveru á Filippseyjum og starfsfólk okkar þekkir því aðstæður vel,“ segir Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.



