27. september 2019

Tvær milljónir jemenskra barna án menntunar

Nú þegar skólaárið á að vera að hefjast hjá öllum börnum í Jemen þá gera áframhaldandi átök í landinu það að verkum að tveimur milljónum barna er neitað um þau grundvallarréttindi sín. UNICEF í Jemen áætlar að 3,7 milljónir barna til viðbótar eigi á hættu að flosna upp úr námi.

27. september 2019 Nú þegar skólaárið á að vera að hefjast hjá öllum börnum í Jemen þá gera áframhaldandi átök í landinu það að verkum að tveimur milljónum barna er neitað um þau grundvallarréttindi sín að ganga menntaveginn. UNICEF í Jemen áætlar að 3,7 milljónir barna til viðbótar eigi á hættu að flosna upp úr námi. Kennarar hafa ekki fengið greidd laun í rúm tvö ár.

„Átök og fátækt hafa svipt milljónir barna í Jemen rétti sínum til menntunar sem og von um bjartari framtíð. Ofbeldi, árásir á skóla og sú staðreynd að börn hafa verið neydd til að flytja sig um set eru meðal ástæðna. Kennarar hafa ekki fengið greidd laun í rúm tvö ár svo hér er líka í húfi gæði menntunar,“ segir Sara Beysolow Nyanti, yfirmaður UNICEF í Jemen.

Það var fyrir um fjórum árum sem núverandi átök í Jemen fóru úr böndunum og gert ríkið að einum versta stað veraldar fyrir börn. Átökin hafa lagt menntakerfi ríkisins nær algjörlega í rúst og var það viðkvæmt fyrir. Einn af hverjum fimm skólum í Jemen er óstarfhæfur vegna átakanna.

„Á þrjátíu ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna er fullkomlega óásættanlegt að menntun og önnur grundvallarréttindi séu jemenskum börnum utan seilingar. Allt vegna mannanna verka,“ segir Nyanti og bendir á að börn sem ekki eru í skóla standi frammi fyrir margvíslegum hættum.

„Það stóreykur líkurnar á misnotkun af öllu tagi. Þau eru líklegri til að vera neydd til að berjast, neydd í þrælkun eða hjónaband. Þau verða af tækifærinu að vaxa og þroskast í umhyggjusömu og áhyggjulausu umhverfi og festast þess í stað í fátæktargildrum og erfiðleikum.“

UNICEF og samstarfsaðilar leggja nótt við dag til að tryggja að börn í Jemen geti sótt rétt sinn til menntunar.

Á síðasta skólaári greiddi UNICEF 127.400 kennurum og skólastarfsmönnum, sem ekki höfðu fengið greidd laun í tvö ár, þóknanir til að hjálpa þeim að dekka kostnað við samgöngur til og frá skóla og önnur útgjöld. UNICEF hefur frá árinu 2015 gert 1.300 skóla starfhæfa á ný og heldur áfram baráttu sinni til að koma námsgögnum til barna við erfiðar aðstæður.

Neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir Jemen er enn í fullum gangi. Nánari upplýsingar um hvernig þú getur lagt baráttunni lið er að finna hér.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn