02. janúar 2020

Minningarfrétt: Guðrún Ögmundsdóttir

Með sorg og söknuð í hjörtum kveður starfsfólk og stjórn UNICEF á Íslandi Guðrúnu Ögmundsdóttur, fyrrverandi stjórnarformann samtakanna og eina ötulustu baráttumanneskju fyrir mannréttindum sem Ísland hefur alið.


Með sorg og söknuð í hjörtum kveður starfsfólk og stjórn UNICEF á Íslandi Guðrúnu Ögmundsdóttur, fyrrverandi stjórnarformann samtakanna og eina ötulustu baráttumanneskju fyrir mannréttindum sem Ísland hefur alið.

Guðrún sat í stjórn UNICEF á Íslandi á árunum 2011-2018 þar af frá 2016-2018 sem stjórnarformaður. Hlýja hennar og manngæska ásamt eldmóði og drifkrafti, er algjört lykilatriði í þeim árangri sem UNICEF á Íslandi hefur náð. Baráttan fyrir réttindum og velferð barna heldur áfram og sýn Guðrúnar og innblástur lifir áfram í verkum okkar.

Á löngum ferli sem félagsráðgjafi, í stjórnmálum og innan stjórnsýslunnar var Guðrún sífellt í fararbroddi við að tala máli jaðarsettra hópa. Ótal margir í íslensku samfélagi eiga henni svo mikið að þakka.

UNICEF á Íslandi sendir fjölskyldu Guðrúnar og þeim fjölmörgu sem syrgja hana hugheilar samúðarkveðjur.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn