18. október 2019 Síðdegis í gær bárust fregnir af því að Tyrkir hefðu samþykkt vopnahléssamkomulag sem lagt var til af Bandaríkjamönnum til 120 klukkustunda, háð ákveðnum skilyrðum. Nú þegar í dag saka Kúrdar í norðausturhluta Sýrlands Tyrki um að hafa gengið á bak orða sinna og berast fregnir af mannfalli í bænum Ras al-Ain. Ljóst er á öllu að ástandið er eldfimt og viðkvæmt sem stendur og eykur enn á óvissuna hjá almennum borgurum sem flúið hafa átökin síðastliðna viku. Enn fremur er enn mikið verk óunnið.
UNICEF bendir á að enn eru rúmlega 160 þúsund manns á vergangi, þar af 70 þúsund börn, sem flúið hafa heimili sín frá 9. október þegar árásir Tyrkja hófust. Meirihlutinn hefur fengið inn hjá ættingjum og vinum en stór hluti er enn í skýlum og öðrum tímabundnum úrræðum á borð við skóla eða aðrar opinberar byggingar. UNICEF leggur áherslu á að neyðin er enn mikil og þörf fyrir stuðning og aðstoð á svæðinu mikilvæg sem aldrei fyrr. Lögð hefur verið lokahönd á aðgerðaáætlun til að mæta þörfum allt að 500 þúsund einstaklinga í norðurausturhluta Sýrlands til næstu þriggja mánaða með tilliti til þarfa, birgða og neyðargagna. Viðbragðsáætlun er sömuleiðis á lokametrunum. Ljóst er að þessar 160 þúsund manneskjur sem flúið hafa heimili sín síðustu daga eru ekki að fara að snúa aftur til síns heima þegar í stað og munu þurfa áframhaldandi neyðaraðstoð. UNICEF mun hvergi hvika.
Þó fregnir hafi borist af því að stofnanir hafi kallað starfsmenn sína úr landi af öryggisástæðum þá segir UNICEF að enginn starfsmaður samtakanna né Sameinuðu þjóðanna hafi yfirgefið starfstöð sína í Qamishli. UNICEF sé með starfslið og samstarfsaðila á svæðinu til að bregðast við þörfum barna í neyð og fjölskyldna þeirra. Fyllsta öryggis er þó gætt en engum skal dyljast að aðstæður eru krefjandi og erfiðar, ekki aðeins með tilliti til öryggis heldur afhendingaleiða neyðargagna. Þrátt fyrir það hefur UNICEF getað veitt og mun halda áfram að veita, nauðstöddum þá aðstoð sem þarf.
Svo virðist sem ákveðinn neyðardoði hafi gert vart um sig gagnvart Sýrlandi og einhver ranghugmynd náð fótfestu um að átökunum þar væri almennt að ljúka eða jafnvel lokið. Fyrir þessa innrás Tyrkja í síðustu viku var staðan í Sýrlandi alvarleg. Það eru í heildina 1,8 milljónir manna sem þarfnast aðstoðar og öryggis í norðausturhlutanum, aðrar 2,8 milljónir í sömu stöðu í norðvesturhluta Sýrlands. Stríðinu gegn börnum í Sýrlandi er þá hvergi nærri lokið.
Það er óásættanlegt að litið sé á börn sem fórnarkostnað sem verði að færa í stríði. Þar eru þau alltaf saklaus en eru í jafnmikilli hættu nú og þau hafa verið síðastliðin níu ár í stríðshrjáðu Sýrlandi.
Sem dæmi má nefna þá er staðfest að 530 börn hafi látis eða slasast alvarlega vegna átaka í Sýrlandi á fyrstu sex mánuðum þessa árs. Flest þeirra í norðvesturhluta landsins. Athugið að þetta eru aðeins staðfest tilfelli Sameinuðu þjóðanna. Rauntölur eru að líkindum miklu hærri.
Gleymum því heldur ekki að þrátt fyrir vopnahlé, þrátt fyrir að börn séu um stundarsakir hugsanlega komin úr bókstaflegri skotlínu hermanna þá hafa líf þeirra og flestar stoðir samfélagsins sem þau reiða sig á verið skilin eftir í molum eftir harðvítug átök síðustu ára. Þau þurfa enn á aðstoð og stuðningi til að endurheimta þó ekki væri nema vott af eðlilegu lífi.
Þú getur lagt starfi UNICEF í norðausturhluta Sýrlands lið. Stuðningur þinn skiptir máli og hefur áhrif.
Sendu sms-ið STOPP í númerið 1900 (1.900 kr.)
Hægt er að leggja frjáls framlög inn á 701-26-102040 og kt. 481203-2950
Nánari upplýsingar um hvernig þú getur hjálpað börnum í Sýrlandi hér.

