29. desember 2004

Neyðaraðstoð vegna flóðanna

Að minnsta kosti 70 þúsund manns fórust í flóðum við strendur Indlands, Sri Lanka, Taílands, Malasíu, Mayanmar, Bangladess, Indónesíu og fleiri landa við Indlandshaf í kjölfar eins stærsta jarðskjálfta sem um getur í 40 ár. UNICEF er með skrifstofur í öllum þeim löndum sem lentu í fljóðbylgjunni og hefur því getað brugðist skjótt við.

Að minnsta kosti 70 þúsund manns fórust í flóðum við strendur Indlands, Sri Lanka, Taílands, Malasíu, Mayanmar, Bangladess, Indónesíu og fleiri landa við Indlandshaf í kjölfar eins stærsta jarðskjálfta sem um getur í 40 ár. UNICEF er með skrifstofur í öllum þeim löndum sem lentu í fljóðbylgjunni og hefur því getað brugðist skjótt við. UNICEF telur að huga þurfi sérstaklega að börnum í þessum aðstæðum, þau eru einn þriðji fórnarlambanna þar sem þau hafa ekki getað hjálpað sér sjálf þegar fljóðbylgjan reið yfir.

Sömuleiðis eru mörg börn sérstaklega hjálparvana eftir foreldra- og ástvinamissi. UNICEF leggur áherslu á að veita börnum sálræna aðstoð og sameina sundraðar fjölskyldur. Heilu skólarnir skoluðust burt og mun UNICEF aðstoða við uppbyggingu þeirra og veita nauðsynleg skólagögn, auk efnis sem miða að sálrænni aðstoð. UNICEF leggur mikla áherslu á að endubyggja skólana sem fyrst til að líf barna raskist sem minnst. Á þeim svæðum sem urðu verst úti í flóðum hafa vatnsból mengast. Börn eru sérstaklega viðkvæm fyrir sjúkdómum sem berast með óhreinu og menguðu vatni. UNICEF vinnur að því að koma vatnstönkum til þeirra sem á þurfa að halda.

Orð fá ekki lýst þeim hroðalega raunveruleika sem skyndilega blasir nú við þúsundum manna.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn