08. febrúar 2005

Neyðarástand í Lýðveldinu Kongó

Neyðarástand hefur skapast í Lýðveldinu Kongó (Kinshasa) vegna átaka í austurhluta landsins. UNICEF aðstoðar nú um 50 þúsund almenna borgara sem hafa þurft að flýja í flóttamannabúðir. Verstu átökin eiga sér stað á svæðinu Djugu, norður af Bunia. Samkvæmt UNICEF hafa flest þorpin verið rænd og brennd af vopnuðum hópum.

Neyðarástand hefur skapast í Lýðveldinu Kongó (Kinshasa) vegna átaka í austurhluta landsins. UNICEF aðstoðar nú um 50 þúsund almenna borgara sem hafa þurft að flýja í flóttamannabúðir.

Verstu átökin eiga sér stað á svæðinu Djugu, norður af Bunia. Samkvæmt UNICEF hafa flest þorpin verið rænd og brennd af vopnuðum hópum. Nokkrar heimildir herma að almennir borgarar hafa verið drepnir og að hundruðum kvenna og stúlkna hafi verið rænt og þær drepnar.

Um 10 þúsund fjölskyldum hefur tekist að leyta skjóls í fjórum búðum. Þrjár þessara búða eru verndaðar af friðargæslusveitum Sameinuðu þjóðanna í Lýðveldinu Kongó.

UNICEF er nú að taka að sér viðamikla neyðaraðstoð sem mun ná til um 50 þúsund manns. UNICEF mun veita hreint drykkjarvatn, aðgang að hreinlætisaðstöðu, skjól og eldunaráhöld, sem og að dreifa próteinríku kexi til vannærðra barna. Áætlað er að bólusetja börn gegn mislingum og hefja kennslu.

Átökin í Lýðveldinu Kongó hafa ekki fengið mikla athygli fjölmiðla en samt sem áður eru þau ein þau blóðugustu síðan seinni heimstyrjöldinni lauk. Á nær sex árum er talið að 3,3 milljónir manna hafi látið lífið af völdum átakanna, meirihluti þeirra almennir borgarar.

Margir hafa látist í átökum en miklu fleiri hafa látist vegna óbeinna afleiðinga þeirra, þ.e. vegna sjúkdóma og hungurs. Heimili, sjúkrahús og skólar hafa verið eyðilagðir, og fjölskyldur og heilu samfélögin sem hafa flúið átökin eru án vatns, matar og skjóls.

Um 1,9 milljónir barna eru vannærð og þjást vegna hungurs. Hundruðir þúsunda barna hafa látist af völdum hungurs og annarra sjúkdóma sem hægt er að koma í veg fyrir með einföldum aðgerðum.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn