30. september 2019 Hálfu ári eftir að tveir fellibyljir gengu yfir Mósambík standa börn og aðrir íbúar frammi fyrir versnandi fæðuöryggi og vannæringu sem aðeins mun aukast ef ekkert er að gert. Nærri ein milljón manna, þar af 160 þúsund börn undir fimm ára aldri, standa nú frammi fyrir matarskorti og vannæringu í norðurhluta Mósambík segir UNICEF í landinu.
Hörmungarástandið í Mósambík má rekja til fellibyljanna Idai og Kenneth sem gengu yfir mið- og norðurhluta Mósambík og nágrannaríki í mars og apríl síðastliðnum. Mósambík er eitt fátækasta ríki veraldar og lifa um 80 prósent íbúa á sjálfsþurftarbúskap. Eyðileggingarmætti fellibyljanna fylgdu mikil flóð, eyðilegging á 780 þúsund hekturum af uppskeru og tugir þúsunda urðu að flýja heimili sín.
Spár gera ráð fyrir að fjöldi barna sem lifi við neyðarástand í fæðuöryggi muni ná 200 þúsund á þeim svæðum sem verst urðu úti fyrir febrúar 2020. 38 þúsund börn gætu orðið alvarlega vannærð og í lífshættu á þeim tíma.
Marcoluigi Corsi, fulltrúi UNICEF í Mósambík, segir eyðilegginguna hafa gert alvarlegt vannæringarástand barna í landinu enn verra.
„Börn á hamfarasvæðinu eru ekki að fá þá næringu sem þau þurfa til að þroskast eðlilega. Sex mánuðum síðar er raunveruleg hætta á meiri þjáningu nú þegar við förum inn í tímabil þrenginga,“ segir Corsi. „Hér þarf meiri aðstoð, þegar í stað, til að styðja við áframhaldandi mannúðarstarf.“
Fyrir náttúruhamfarirnar glímdi 43 prósent mósambískra barna við næringarskort og afleiðingar hans. Næringarsjúkdómar á borð við húðkröm (e. Pellagra), sem tengist einhæfu mataræði, hafa komið upp í fyrsta skipti í mörg ár og eru nú yfir 600 skráð tilfelli. Þá er von á árstíðabundnum malaríu- og niðurgangstilfellum.
Ófullnægjandi fæðuöryggi og vannæring hefur einnig áhrif á öryggi barna. Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) bendir á að verð á maís hafi hækkað umtalsvert undanfarið og haldist hátt á hamfarasvæðum. Vísbendingar séu um að slíkar verðhækkanir á nauðþurftum hafi þær afleiðingar að fjölskyldur séu að ýta börnum sínum út í hjónaband eða barnaþrælkun.
- Skima rúmlega 735 þúsund börn undir fimm ára aldri fyrir bráðavannæringu. Skima á 400 þúsund til viðbótar fyrir febrúar á næsta ári.
- Meðhöndla nærri 10 þúsund vannærð börn.
- Innleiða matarmiðaverkefni sem aðstoða mun 100 þúsund manns á hamfarasvæðum sem og barnastyrki til 10 þúsund heimila til að auka fæðuöryggi.
„Áhrif þessara tveggja fellibylja eru fordæmalaus en það er núna sem við erum virkilega að sjá síðbúin áhrif hamfaranna,“ segir James McQuen-Patterson, yfirmaður heilsu og næringar hjá UNICEF í Mósambík. Hann segir það gríðarflókið verkefni að ná til vannærðra barna í mestri neyð. Það muni aðeins takast með samstilltum aðgerðum allra samstarfsaðila sem að koma.


