Samstarfshópur einstaklinga, fyrirtækja og fjölmiðla undirbýr nú landssöfnun til styrktar þeim sem þjást vegna hamfaraflóðanna í Asíu. Söfnunin hefst á mánudag og nær hámarki með sjónvarpsútsendingu laugardaginn 15. janúar. Verndari söfnunarinnar og talsmaður verður Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands.
Söfnunin fer fram undir kjörorðunum Neyðarhjálp úr norðri. Landsmönnum mun gefast kostur á að hringja í söfnunarsíma alla næstu viku en á laugardag verður bein útsending með þátttöku allra sjónvarpsstöðva – Sjónvarpsins, Stöðvar tvö og Skjás eins. Þann sama dag verður einnig safnað í Smáralind og Kringlunni, en gert er ráð fyrir að yfir 100 þúsund manns heimsæki þessar tvær verslunarmiðstöðvar.
Allt fé sem safnast fer til neyðarhjálpar og uppbyggingar á hamfarasvæðunum í gegnum hjálparstarf Rauða kross Íslands, Hjálparstarf kirkjunnar, Barnaheill, SOS barnaþorpa og UNICEF.
