11. apríl 2008

Ný skýrsla um baráttuna gegn HIV/alnæmi

Í nýrri skýrslu UNICEF, UNAIDS og WHO kemur fram að sífellt fleiri börn og þungaðar konur með HIV/alnæmi fá meðhöndlun.

Sífellt fleiri börn og þungaðar konur með HIV/alnæmi fá meðhöndlun. Það er engu að síður gríðarlegt verk óunnið til að koma í veg fyrir útbreiðslu HIV. Þetta kemur fram í skýrslu sem gefin var út á vegum Sameinuðu þjóðanna fyrr í mánuðinum.

Í skýslunni, sem unnin er af UNAIDS, WHO og UNICEF, er farið yfir þann árangur sem náðst hefur á undanförnu ári og þær áskoranir sem alþjóðasamfélagið stendur enn frammi fyrir.

Talið er að 290.000 börn yngri en 15 ára hafi látist af völdum alnæmis á síðasta ári. 12,1 milljón barna í Afríku sunnan Sahara-eyðimerkurinnar misstu annað eða báða foreldra sína vegna alnæmis.

„Börn og ungt fólk í dag hefur aldrei kynnt veröld án HIV,“ sagði framkvæmdastjóri UNICEF, Ann M. Veneman. „Á hverju ári falla þúsundir barna í valinn vegna sjúkdómsins, og milljónir hafa misst foreldra sína. Hin alþjóðlega barátta gegn HIV verður að leggja áherslu á börn.“

Skýrsluna má nálgast í heild sinni hér.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn