Fjölmargir hlauparar á öllum aldri hafa skráð sig í Team #runicef og munu hlaupa til styrktar UNICEF á Íslandi í Reykjavíkurmaraþoninu í ár. Öll áheit á hlaupara UNICEF í ár renna í neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn á flótta frá Sýrlandi.
„Það er stórkostlegt að sjá hversu margir eru til í að hlaupa fyrir okkur og láta sig málefni barna á flótta varða,“ segir Bergsteinn Jónsson framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. 46 hlauparar hafa skráð sig á www.hlaupastyrkur.is og munu hlaupa fyrir UNICEF á Íslandi þann 20. ágúst næstkomandi. „Það er ekki bara upphæðin sem safnast sem skiptir máli. Samhugurinn og viljinn til að vekja athygli á þessum mikilvæga málstað er alveg jafn dýrmætur“, segir Bergsteinn. Eins og í fyrra þá geta allir í #runicef-liðinu komið í heimsókn á skrifstofu UNICEF og fengið #runicef-ennisbönd til að nota við æfingar og á hlaupadeginum
Nú eru rúm fimm ár liðin frá því að stríðið í Sýrlandi hófst og á þeim tíma hafa milljónir manns neyðst til að flýja heimili sín. Helmingur flóttamannanna eru börn. Neyðaraðgerðir UNICEF í Sýrlandi og nágrannaríkjunum eru þær umfangsmestu hingað til og ná frá Sýrlandi og nágrannaríkjunum (Jórdaníu, Tyrklandi, Írak, Íran og Líbanon) og yfir til Evrópu. UNICEF á Íslandi hefur staðið fyrir neyðarsöfnun fyrir börn á flótta frá Sýrlandi síðan haustið 2012.
UNICEF hefur veitt milljónum barna frá Sýrlandi neyðarhjálp síðan stríðið hófst. Þar má nefna meðferð við vannæringu, sálrænan stuðning, menntun, öruggt umhverfi á barnvænum svæðum, bólusetningar, hlý vetrarföt, aðgengi að drykkjarhæfu vatni, heilsugæslu. UNICEF sinnir auk þess umfangsmikilli barnavernd og leggur áherslu á að sameina börn fjölskyldum sínum og tryggja að þau fái alþjóðlega vernd. Þetta hefði ekki verið hægt án víðtæks stuðnings almennings um allan heim, þar á meðal á Íslandi.
Ef þú ætlar að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu 20. ágúst viljum við endilega hvetja þig til að ganga til liðs við team #runicef og hlaupa fyrir börn á flótta. Þátttakendum í Reykjavíkurmaraþoninu gefst kostur á að hlaupa til styrktar ýmsum málefnum, þar á meðal UNICEF, með því að skrá sig hér.
UNICEF verður á staðnum í hlaupinu og í stuði á hliðarlínunni við JL-húsið til að hvetja hlaupara áfram. Markmiðið er að gefa öllum í #runicef - liðinu fimmu!


