21. janúar 2016

Öll börn eiga réttindi, öll börn skipta máli

Á sama tíma og við beinum sjónum okkar að þeim börnum sem búa við bágan kost hér á landi megum við ekki gleyma að á heimsvísu eru fleiri börn á flótta nú en hafa verið síðan í seinni heimsstyrjöldinni.

Í gær (20. janúar) birtist innsend grein á Vísi frá UNICEF á Íslandi þar sem fjallað var um börn á Íslandi og börn annars staðar í heiminum. Segir í greininni að fyrir rúmum aldarfjórðungi samþykkti allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna sáttmála sem markaði mikilvæg tímamót fyrir öll börn.

„Þá varð Barnasáttmálinn til. Enginn mannréttindasáttmáli hefur notið viðlíka stuðnings hjá alþjóðasamfélaginu – þetta er útbreiddasti mannréttindasamningur í heimi og tryggir öllum börnum sömu mannréttindi,“ segir í greininni.

„Verkefnið sem Barnasáttmálinn gefur okkur öllum er margslungið. Þeim ríkjum sem hafa fullgilt sáttmálann ber m.a. skylda til að tryggja að hagsmunir barna séu meginforsendur í öllum málum er varða börn og koma í veg fyrir mismunun meðal barna.“

Ný skýrsla um börn á Íslandi kynnt í gær

Greinin birtist í tilefni þess að í gær kynnti UNICEF á Íslandi nýja skýrslu um börn sem líða efnislegan skort hér á landi. Niðurstöður hennar sýna að fjöldi barna á Íslandi stendur höllum fæti. Með skýrslunni fer UNICEF á Íslandi fram á það við stjórnvöld að þau framkvæmi árlega greiningu á efnislegum skorti meðal barna hér á landi og setji sér skýr markmið um að draga úr skortinum.

„Við getum öll verið sammála um að ólíðandi sé að börn á Íslandi líði skort, sérstaklega með tilliti til þess að við erum eitt af efnamestu ríkjum heims,“ segir í greininni.

„Á sama tíma og við beinum sjónum okkar að þeim börnum sem búa við bágan kost hér á landi megum við ekki gleyma að á heimsvísu eru fleiri börn á flótta nú en hafa verið síðan í seinni heimsstyrjöldinni. Börn búa á stríðssvæðum og hafa hrökklast út í óvissuna. Önnur búa við sárafátækt, sofna hungruð og vakna hungruð, hafa ekki aðgang að hreinu vatni eða látast af sjúkdómum sem auðvelt er að koma í veg fyrir.“

UNICEF á Íslandi bendir á að út frá Barnasáttmálanum sé ábyrgð okkar mikil sem eitt af mest velmegandi ríkjum heims. „Bæði gagnvart börnum sem búa á Íslandi og þeim sem búa við bágar aðstæður út af stríðsátökum, fátækt og öðru. Ábyrgð okkar gagnvart börnum á Íslandi útilokar aldrei nauðsyn þess að berjast fyrir réttindum barna á heimsvísu. Við getum og eigum að gera bæði í einu. Öll börn eiga réttindi, öll börn skipta máli.“

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn