Rithöfundar um allan heim taka nú þátt í því með UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, að skrifa örsögur um réttindi barna undir myllumerkjunum #ForEveryChild og #TinyStories.
Örsögurnar marka upphaf afmælishalda UNICEF í tilefni af 70 ára baráttu samtakanna fyrir réttindum barna.
Andri Snær Magnason tekur þátt hér á landi en meðal annarra rithöfunda eru sem dæmi Paulo Coelho, Chimamanda Adichie, Christina Lamb og Sofie Oksanen.
Öllum er að sjálfsögðu frjálst að taka þátt, skrifa örsögur um réttindi barna og birta með myllumerkjunum.
Ég horfði inn um búðargluggann og sá barnið teygja sig í bók sem var í efstu hillu. Fullorðinn maður stóð hjá og virtist ekki sjá barnið. Viltu rétta mér bókina manni? spurði barnið, það hoppaði og teygði sig, en maðurinn svaraði ekki.
Og þarna var drengur sem leiddi blinda systur sína og sagði, hún þarf bara þetta glas í efstu hillunni, þá lagast hún, viltu rétta mér glasið?
Þar stóð kona, sem svaraði ekki, þótt hún gæti hæglega rétt barninu glasið. Og svo kom lítil stúlka, hún benti á vatnsbrúsa í efstu hillu og sagði: Geturðu rétt mér brúsann? Unglingurinn sem stóð við hliðina virtist ekki heyra, var bara að fikta í símanum.
Það var fáránlegt að fylgjast með þessu. Það lá við að ég bankaði í glerið. En börnin gengu að glugganum, litu á mig og spurðu, geturðu rétt mér bók, meðal og vatn en ég sagði. Ég er ekki inni í búðinni, ég get ekki rétt þér neitt, ég get í mesta lagið bankað á glerið. Þá leit eitt barnið á mig og sagði: Sérðu ekki að glugginn er spegill? Það gerist ekkert þegar þú bankar í spegil.
Þann 20. nóvember 1989 var Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna samþykktur á Allsherjarþingi SÞ. Sáttmálinn markaði tímamót fyrir mannréttindum barna á heimsvísu og er útbreiddasti mannréttindasáttmáli heims.
Í fyrra samþykkti þingsályktunartillaga á Alþingi hér á landi um að helga daginn fræðslu um mannréttindi barna. Þar sem 20. nóvember ber upp á sunnudag er dagurinn haldinn hátíðlegur í dag, 18. nóvember, í leik- og grunnskólum landsins.
„Það er gaman að örsagan hans Andra birtist í dag, í fyrsta skipti sem dagur mannréttinda barna er haldinn hátíðlegur hér á landi,“ segir Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.
„Ísland lögfesti Barnasáttmálann árið 2013 en við megum aldrei sofa á verðinum þegar kemur að réttindum barna.“

