12. september 2018

Ómetanlegur stuðningur Íslands við börn í Jemen, Rúanda, Malí og Jórdaníu

Árlega berast okkur ánægjulegar fréttir um hversu mikilvægur stuðningur frá Íslandi hefur verið fyrir börn um allan heim. Árið 2017 studdi íslenska ríkið UNICEF alþjóðlega með kjarnaframlagi upp á rúmlega milljón bandaríkjadala.

Árlega berast okkur ánægjulegar fréttir um hversu mikilvægur stuðningur frá Íslandi hefur verið fyrir börn um allan heim. Árið 2017 studdi íslenska ríkið UNICEF alþjóðlega með kjarnaframlagi upp á rúmlega milljón bandaríkjadala. Þökk sé þeim stuðningi náði UNICEF að styðja börn í Jemen, Rúanda, Malí og Jórdaníu maðal annars með bólusetningum gegn lífshættulegum sjúkdómum, bættri heilbrigðisþjónustu, vetrarfatnaði, endurbyggingu skóla og hreinu vatni.

Samstarf UNICEF og utanríkisráðuneytisins er mikilvægur liður í þróunarsamvinnu Íslands og íslensk stjórnvöld hafa veitt framlög til UNICEF alþjóðlega um árabil. Mikilvægur hluti framlaganna frá íslenska ríkisinu til UNICEF á heimsvísu eru svokölluð kjarnaframlög (e. regular resources) sem ekki eru eyrnamerkt ákveðnum verkefnum. Kjarnaframlög gera UNICEF kleift að skipuleggja sig fram í tímann, bregðast strax við þegar neyðarástand brýst út og vera til staðar þar sem þörfin er mest hverju sinni.

Staða barna í Jemen í dag er skelfileg, og nánast hvert einasta barn í landinu þarf á lífsnauðsynlegri hjálp að halda. Til að bregðast við neyð barna í Jemen skiptu kjarnaframlög til UNICEF gríðarlegu máli. Íslenska ríkið hefur stutt dyggilega við neyðaraðgerðir UNICEF í landinu og gert samtökunum kleift að veita milljónum barna aðstoð við gífurlega erfiðar aðstæður.

Á síðasta ári bólusetti UNICEF 4,8 milljónir barna undir 5 ára í Jemen gegn mænusótt, og meira en 640 þúsund börn gegn mislingum, þökk sé slíkum framlögum. Báðir sjúkdómarnir geta verið lífshættulegir börnum. Auk þess studdi Ísland endurbyggingu vatns- og hreinlætiskerfa og hjálpaði til við að meðhöndla 226 þúsund börn við alvarlegri bráðavannæringu og tryggja 1,3 milljónum barna menntun, svo nokkuð sé nefnt.

Í Jórdaníu var yfir 100 þúsund börnum sem hafa flúið stíðið í Sýrlandi útvegaður hlýr fatnaður, skór og teppi til að verjast vetrarkuldanum í flóttamannabúðum. Leikskólar fyrir börn og nýsköpunarverkefni fyrir ungmenni nutu einnig stuðnings UNICEF og utanríkisráðuneytisins. „Ég kem núna á hverjum degi, og mun halda því áfram. Þetta hjálpar mér að sigrast á áskorunum, ég læri nýja hluti og kennslan hvetur mig áfram,“ segir Reem, 15 ára, sem kemur nú reglulega í nýsköpunarmiðstöð sem UNICEF hefur sett á laggirnar fyrir ungmenni í Jórdaníu.

Vanæring er ein helsta dánarorsök barna í Malí. Í Timbúktú, í norðurhluta landsins, þjást 15% barna vegna bráðavannæringar. Áframhaldandi átök og óstöðugleiki í landinu ógna lífi enn fleiri. Framlög frá Íslandi voru því mikilvæg til að bregðast við vannæringu meðal barna í landinu. Þau gerðu UNICEF kleift að meðhöndla yfir 6 þúsund börn við alvarlegri bráðavannæringu og útvega milljónum barna A-vítamín, bætiefni og aformunarlyf. Allt stuðlar þetta að bættri heilsu barna í landinu.

Samvinna UNICEF og utanríkisráðuneytisins gerði UNICEF einnig kleift að sinna þróunar- og hjálparstarfi á svæðum sem njóta lítillar athygli fjölmiðla og umheimsins almennt og að ná til allra berskjölduðustu barnanna. Í Rúanda vann UNICEF meðal annars að því að bæta gæði mæðra- og ungbarnaverndar til að draga úr tíðni ungbarnadauða. Samstarf við menntamálaráðuneyti landsins lagði áherslu á jöfn tækifæri stúlkna og drengja til menntunar og auk þess aðstoðaði UNICEF ríkisstjórn Rúanda við að tryggja réttindi fatlaðra barna.

Framlög frá Íslandi gegna því ómissandi hlutverki í að vernda og bæta líf barna um allan heim, óháð því hvort þörf þeirra hafi vakið athygli alþjóðasamfélagsins. Þökk sé slíkum stuðningi getur UNICEF barist fyrir réttindum allra barna á heimsvísu og stuðlað að varanlegum umbótum í heiminum.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn