19. september 2016

Opinn fundur ungmennaráðs UNICEF á Íslandi

Miðvikudaginn 21. september efnir ungmennaráð UNICEF á Íslandi til opins fundar um starfið fyrir alla áhugasama á aldrinum 13-18 ára. Fundurinn byrjar kl. 17:00 og fer fram á skrifstofu UNICEF á Íslandi sem staðsett er á Laugavegi 176 (Gamla sjónvarpshúsið), á 5. hæð.

Miðvikudaginn 21. september efnir ungmennaráð UNICEF á Íslandi til opins fundar um starfið fyrir alla áhugasama á aldrinum 13-18 ára. Fundurinn byrjar kl. 17:00 og fer fram á skrifstofu UNICEF á Íslandi sem staðsett er á Laugavegi 176 (Gamla sjónvarpshúsið), á 5. hæð. Boðið verður upp á pizzu og farið í leiki, ásamt því að barátta UNICEF verður kynnt.

Viðstöddum gefst síðan tækifæri til að skrá sig í ungmennaráðið og vera með þeim í spennandi verkefnum sem eru á næsta leyti.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn