11. desember 2013

Ormalyf undir jólatréið?

Ungbarnavigt, bóluefni og ormalyf vöktu lukku hjá hópi landsþekktra Íslendinga sem gengu í lið með UNICEF til að benda á hve mikið af gjöfum sem engum nýtast eru gefnar hér á landi fyrir jólin, gjöfum sem gjarnan enda fljótlega ofan í skúffu eða inni í geymslu.

UNICEF á Íslandi vekur í dag athygli á því að sannar gjafir UNICEF nýtast alltaf – lífsnauðsynleg hjálpargögn fyrir börn í fátækustu ríkjum heims. Fólkið valdi sér eina slíka gjöf fyrir jólin, allt frá moskítónetum til mótorhjóla fyrir heilbrigðisstarfsfólk.

„Ég vel næringarmjólkina,“ segir útvarpskonan Gunna Dís og á við orkuríka þurrmjólk sem sérstaklega hefur verið þróuð til að meðhöndla vannærð börn sem eru orðin of veikburða til að innbyrða fasta fæðu. „Ég er sjálf nýbökuð móðir og ég má ekki til þess hugsa að ungbörn fái ekki næringu.“

Gjafir sem koma ávallt að gagni

Samkvæmt könnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir UNICEF í fyrra fær meira en fjórði hver landsmaður jólagjöf sem hann vill ekki eða nýtist ekki. Ætla má að hér á landi séu árlega gefnar 155.000 slíkar gjafir. Vinnustaðir eru samkvæmt könnuninni líklegastir allra til að gefa gjöf sem ekki nýtist eða fellur ekki í kramið hjá viðtakanda. Fast á eftir fylgja nánir ættingjar.

Við valið á hjálpargögnunum nú fyrir jólin sköpuðust umræður um að allir búi ekki svo vel að hafa til dæmis aðgang að hreinu vatni. „Á Íslandi erum við svo heppin að geta alltaf fengið hreint vatn. Með einni vatnshreinsitöflu er hægt að hreinsa fimm lítra af vatni og gera það drykkjarhæft. Það finnst mér vera góð gjöf,“ segir Hilmar Guðjónsson, leikari.

„Við getum bara skrúfað frá krananum og fengið okkur vatn en það hafa það ekki allir svo gott. Vatnsdæla getur útvegað heilu samfélagi drykkjarvatn og í staðinn fyrir að þurfa að ganga langar vegalengdir til þess að sækja vatn geta börnin frekar notað tímann til að læra eða leika sér,“ segir Árni Vilhjálmsson í FM Belfast.

Enn einn vasinn eða hreint vatn?

Sífellt fleiri kjósa að gefa sannar gjafir í jólagjöf. Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, segir það ánægjulega þróun.

„Marga vantar kannski ekki neitt, annað en að vita að einhver hugsar hlýlega til þeirra um jólin. Enn einn vasinn gerir ef til vill lítið gagn. Enn einn kertastjakinn er líka eitthvað sem margir gætu lifað án. Sannar gjafir koma hins vegar alltaf að gagni,“ segir Stefán.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn