Óttast er að hundruðir hafi látist í Nepal eftir að jarðskjálfti að stærðinni 7,9 reið yfir og olli gríðarlegri eyðileggingu í höfuðborginni Katmandu og nágrenni hennar. Jarðskjálfta af slíkri stærð getur fylgt gríðarleg eyðilegging sem hefur í för með sér að helstu stoðir samfélagsins lamast.
UNICEF er á staðnum, veitir neyðarhjálp og metur hvernig best sé að haga aðgerðum til þess að aðstoða megi börn, konur og menn sem eiga um sárt að binda eftir skjálftann. Við þurfum á aðstoð ykkar að halda. Það er skylda okkar að vera til staðar fyrir öll börn í Nepal nú sem áður. Við vinnum nú hörðum höndum að því að veita neyðarhjálp og látum ykkur vita um leið og við fáum frekari upplýsingar frá samstarfsfèlögum okkar á vettvangi. Hægt er að styrkja neyðaraðgerðir UNICEF vegna skjálftans með því að senda SMS-ið UNICEF í númerið 1900 og styrkja neyðarstarfið um 1500 kr.
25. apríl 2015
Óttast að fjöldi fólks hafi látist í Nepal
Fleiri
fréttir
21. október 2026
Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira20. október 2026
Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira16. október 2026
