16. apríl 2012

Páll Óskar hvetur fólk til að leggja söfnun lið

Söngvarinn Páll Óskar Hjálmtýsson hvetur almenning til að leggja neyðarsöfnun UNICEF lið, en um ein milljón barna er í hættu vegna vannæringar á Sahel-svæðinu í Afríku. Hringið í síma 908 1000, 908 3000 eða 908 5000 til að styrkja. Pegasus gaf vinnu sína við gerð myndbandsins.

Í myndbandinu hvetur Páll Óskar Hjálmtýsson almenning að leggja neyðarsöfnun UNICEF fyrir Sahel-svæðið lið, en yfir ein milljón barna yngri en 5 ára er í lífshættu vegna vannæringar. Hægt er að styrkja söfnunina hér eða með því að hringja í síma 908 1000 (1.000 kr.), 908 3000 (3.000 kr.) eða 908 5000 (5.000).

Pegasus leikstýrði og framleiddi myndbandið UNICEF að kostnaðarlausu. Rúnar Ingi Einarsson, leikstjóri hjá Pegasus, sá um verkefnið, en alls gáfu átta starfsmenn Pegasus vinnu sína. UNICEF vill koma á framfæri miklu þakklæti til þeirra sem komu að gerð myndbandsins.

Hvað gerir UNICEF fyrir söfnunarféð?

Fyrir framlögin getur UNICEF veitt alvarlega vannærðum börnum á Sahel-svæðinu rétta meðhöndlun, komið í veg fyrir að fleiri börn verði vannærð og styrkt innviði samfélagsins til að koma í veg fyrir að neyðarástand skapist á svæðinu í framtíðinni. Þetta getur UNICEF ekki gert nema með aðstoð almennings og fyrirtækja í landinu.

Páll Óskar heimsótti verkefni UNICEF í Síerra Leóne í Vestur-Afríku árið 2011 í tengslum við Dag rauða nefsins og veit því hversu miklu máli verkefni UNICEF skipta. Hann gaf vinnu sína við gerð myndbandsins.

Nánar um ástandið á Sahel-svæðinu

Hættuástand hefur skapast á Sahel-svæðinu í Vestur- og Mið-Afríku. Átta ríki glíma nú við skelfilegar afleiðingar þurrka og uppskerubrests. Yfir ein milljón barna yngri en fimm ára er í lífshættu.

Þetta er neyð sem farið hefur lítið fyrir en sem UNICEF einsetur sér nú að vekja heimsathygli á. Hörmungarnar á Sahel-svæðinu eru þöglar náttúruhamfarir sem ólíkt jarðskjálftum og flóðbylgjum lenda auðveldlega utan kastljóss fjölmiðla. UNICEF biðlar til umheimsins að veita svæðinu athygli og láta það ekki verða að manngerðum hamförum.

Á ákveðnum svæðum í Níger, Máritaníu og Tsjad er ástandið þegar orðið afar alvarlegt – þ.e. hlutfall barna sem þjást af alvarlegri bráðavannæringu hefur þegar farið yfir töluna 15% sem eru skilgreind hættumörk fyrir neyðarástand. Víðast er talan komin yfir 10% sem flokkað er sem „alvarlegt“. UNICEF leggur áherslu á að viðvörunarbjöllum sé hringt strax í dag.

Fólk á Sahel-svæðinu býr yfir gríðarlegri þrautseigju en fyrir því eru þó takmörk og þessum takmörkum hefur nú verið náð.

Sem Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna hefur UNICEF skyldu til að vekja alþjóðasamfélagið til vitundar um þá bráðu hættu sem börn á svæðinu standa frammi fyrir – og benda á að neyðarástand þar er langt í frá óumflýjanlegt. Vel er hægt að grípa inn í. UNICEF hefur bæði þekkinguna, getuna og reynsluna til að meðhöndla börn gegn vannæringu og minnka líkurnar á að önnur verði vannærð. UNICEF er á vettvangi á þessari stundu – í öllum átta ríkjunum sem um ræðir.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn