02. desember 2016

Prins Póló og Gosar fyrir UNICEF

Prins Póló og Gosar koma með jólin til þín í jólalagi sem kemur út í dag - þú getur hlustað á sannargjafir.is

Tónlistarmaðurinn Prins Póló kom sannarlega með jólin til okkar hér hjá UNICEF!
Gefum honum orðið:

Rétt fyrir síðustu jól greip mig gríðarleg jólastemning. Þar sem ég stóð inni í stofunni heima var eins og andi jólanna ætlaði að bera mig ofurliði. Ég staulaðist inn í svefnherbergi og greip með mér lítið Casio-hljómborð. Ég settist á rúmstokkinn og á skömmum tíma vall upp úr mér lítið jólalag.

Ég stakk laginu ofan í skúffu þar til nú í haust þegar ég dustaði af því rykið. Þegar Gosarnir, þeir Valdimar Guðmundsson, Snorri Helgason, Teitur Magnússon og Jón Mýrdal, heimsóttu okkur fjölskylduna í sveitina um daginn þá var ég langt kominn með að hljóðrita lagið og fékk ég því drengina til að leggja raddir sínar og gítarþukl ofan á upptökuna. Því næst sendi ég lagið í hljóðblöndun til Axels Árnasonar.

Þegar ég fékk lagið aftur í hendurnar velti ég því fyrir mér hvað ég ætti að gera við það og í anda boðskapar lagsins ákvað ég að gefa UNICEF það. Myndband sem við gerðum við lagið er sýnt inni á vefsíðunni sannargjafir.is þar sem fólk getur keypt gjafabréf UNICEF og gefið hvert öðru í jólagjöf.

Og áfram heldur Prins Póló:

Sannar gjafir UNICEF eru lífsnauðsynleg hjálpargögn fyrir bágstödd börn. Gjöfunum sem þú kaupir í vefverslun UNICEF er dreift til barna og fjölskyldna þeirra í samfélögum þar sem þörfin er mest. Sannar gjafir UNICEF eru keyptar í nafni þess sem þig langar að gleðja, þú skrifar persónulega kveðju á gjafabréfið og UNICEF sér síðan til þess að hjálpargögnin berist til barna sem á þurfa að halda. Með þessu getur fólk lagt fram hjálparhönd á einfaldan, fallegan og skemmtilegan hátt.

Þú getur valið um margs konar hjálpargögn af öllum stærðum og gerðum og í öllum verðflokkum. Öll eiga þau eitt sameiginlegt: Að bæta líf barna.

Er hægt að gefa fallegri gjöf?

Prins Póló

Jólakveðja

Lag/texti: Svavar Pétur Eysteisson
Flytjandi: Svavar Pétur Eysteinsson, Valdimar Guðmundsson, Snorri Helgason og Teitur Magnússon.
Upptökustjórn: Svavar Pétur Eysteinsson
Hljóðblöndun og tónjöfnun: Axel Flex Árnason
Kvikmyndataka: Haukur Valdimar Pálsson

Hlustaðu á lagið hér.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn