Tækifæri til áhrifa -

Ráðstefna um

þátttöku barna

UNICEF á Íslandi stóð fyrir ráðstefnunni „Tækifæri til áhrifa - ráðstefna um þátttöku barna“, þann 15. september 2022 á Reykjavík Natura. Fjallað var um tækifærin sem börn hafa til áhrifa í samfélaginu - um jafnræði og inngildingu, starf sveitarfélaga, ungmennaráð, grunn- og leikskólastigið, ásamt frístundavettvangnum.

Gestir ráðstefnunnar var fagfólk sem starfar með börnum, svo sem kennara og starfsfólk í skólum, frístund, íþróttum, félagsmiðstöð og aðilar innan stjórnsýslunnar sem taka ákvarðanir er varða börn, og annað áhugafólk um réttindi barna og þátttöku þeirra.

Aðalræðumaður var Marie Wernham

Marie er sérfræðingur og ráðgjafi í réttindum barna og sérhæfir sig í stefnumótun, þjálfun, rannsóknum og hagsmunagæslu. Hún hefur unnið með börnum, félagasamtökum, UNICEF og Barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna m.a. í tengslum við þátttöku barna, barnavernd, börn í réttarkerfinu og fræðslu um réttindi barna. Hún hefur starfað í yfir 30 löndum og hefur framleitt fjölda þjálfunarhandbóka, hagnýt verkfærasett og skýrslur er varða þátttöku barna.

Á ráðstefnunni var boðið upp á fjölbreyttar málstofur sem þátttöku barna í starfi sveitarfélaga, skóla og frístundavettvangsins. Þá fóru fram vinnustofur um mikilvægi réttindafræðslu til þess að auka þátttöku barna og um tækifæri til áhrifa í starfi sveitarfélaga.

Dagskrá

11:30 - 12:00 Opnun

Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastýra UNICEF á Íslandi, og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, ávarpa ráðstefnuna. Lykilræðumaður er Marie Wernham, sérfræðingur í réttindum barna, fjalla um mikilvægi þess að börn fái tækifæri til áhrifa.

12:00 - 12:30 Hádegishlé

Boðið verður upp á léttar veitingar.

12:30 - 13:15 Málstofur 1 - 3

Þátttakendur velja milli þriggja málstofa sem haldnar eru samhliða. Málstofan Þátttaka barna, inngilding og jafnræði er í höndum Evu Harðardóttur, aðjúnkts við Háskóla Íslands. Hanna Borg Jónsdóttir, verkefnastýra Barnvænna sveitarfélaga stýrir málstofu um Ungmennaráð og áhrif á stjórnsýslu og Sigyn Blöndal, verkefnastýra Réttindaskóla og -frístundar, leiðir málstofu um Áhrif barna á skólastarf.

13:25 - 14:10 Málstofur 4 - 6

Þátttakendur velja milli þriggja málstofa sem haldnar eru samhliða. Málstofunni Þátttaka barna í frístunda- og félagsmiðstöðvastarfi verður stýrt af Pétri Hjörvari Þorkelssyni, þátttökusérfræðingi UNICEF á Íslandi. Í málstofu um Umhverfi og skipulag verður fjallað um þátttöku barna í skipulagi sveitafélaga. Umsjón með málstofunni er í höndum Hönnu Borgar Jónsdóttur. Í málstofu um Þátttöku yngri barna leiðir Sigyn Blöndal umræður um leiksskólastigið.

14:10 - 14:30 Kaffihlé

14:30 - 15:50 Vinnustofur

Réttindafræðsla og þátttaka barna er vinnustofa sem leidd verður af Marie Wernham, sérfræðingi í réttindafræðslu. Þar verður unnið með hugmyndir um mikilvægi fræðslu um réttindi barna til þess að auka þátttöku þeirra og tækifæri til áhrifa.

Barnvæn sveitarfélög og þátttaka barna er vinnustofa sem leidd er af Hönnu Borg Jónsdóttur. Þar fá þátttakendur kynningu á verkefnum Barnvænna sveitarfélaga og góðum dæmum um þátttöku barna til þess að vinna með í hópavinnu.

15:50 - 16:30 Samantekt og lok

Samantekt á lærdómi og skilaboðum ráðstefnunnar. Boðið verður upp á óáfengan drykk.