07. mars 2006

Reynt að svindla á íslenskri ferðaþjónustu í nafni UNICEF

Vegna fréttar um að erlendir einstaklingar svindluðu pening frá aðilum í ferðaþjónustu í nafni Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna eða annarra samtaka vill UNICEF á Íslandi koma eftirfarandi á framfæri:

Vegna fréttar um að erlendir einstaklingar svindluðu pening frá aðilum í ferðaþjónustu í nafni Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna eða annarra samtaka vill UNICEF á Íslandi koma eftirfarandi á framfæri:

Við vitum ekki hvort um sé að ræða peningasvindl í stórum stíl, en við höfum fengið fregnir af tveimur mismunandi tilvikum, eitt í byrjun janúar þar sem haft var samband við okkur og við náðum að stöðva og svo frá fréttum sjónvarps í gær. UNICEF Ísland lítur það mjög alvarlegum augum ef einhver reynir að nota það traust sem felst í nafni UNICEF og biðjum við um að haft verði samband við okkur ef grunur leikur á svindli.

Þess má geta að ef starfsmenn UNICEF heimsækja landið þá fer pöntun á gistingu í gegnum UNICEF hér á landi. Ekki undir neinum kringumstæðum eru sendar ávísanir í nafni UNICEF erlendis frá til að greiða fyrir gistingu og uppihald hér á landi. Ef grunur leikur á svindli getum við flett viðkomandi nafni upp í starfsmannaskrá UNICEF og haft samband við þá skrifstofu eða landsnefnd sem einstaklingurinn segist starfa hjá og þannig komið í veg fyrir allan vafa.

Því miður þekkist þessi aðferð á peningasvindli víða og vill UNICEF gera allt til að koma í veg fyrir að óprúttnir einstaklingar nýti sér nafn samtakanna í þessum tilgangi.

Vinsamlegast hafið samband við landsnefnd UNICEF á Íslandi í síma 552 6300 eða sendið tölvupóst á unicef@unicef.is.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn