Þau leiðu mistök áttu sér stað við skuldfærslu vegna framlaga heimsforeldra af VISA kreditkortum nú eftir mánaðarnótin að rangur skýringartexti birtist í heimabanka. Til viðbótar við „UNICEF“ stendur textinn „Dagur R“. Skal áréttað að um er að ræða venjubundna skuldfærslu vegna styrks heimsforeldra og alls ótengda Degi rauða nefsins sem fram fór síðastliðinn föstudag.
Mistökin verða leiðrétt á prentuðu yfirliti frá VISA sem gefið er út seinni hluta desembermánaðar.
Við biðjumst innilegrar afsökunar á þessum mistökum.
