26. nóvember 2019

UNICEF og RÚV í spennandi samstarf

RÚV og UNICEF á Íslandi hafa undirritað samkomulag sín á milli um samstarf við framleiðslu á þáttaröð í tilefni af 30 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

26. nóvember 2019 RÚV og UNICEF á Íslandi hafa undirritað samkomulag sín á milli um samstarf við framleiðslu á þáttaröð í tilefni af 30 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Þættirnir, sem verða sex talsins, verða að stærstum hluta teknir upp í Afríku. Ekki verður um að ræða hið hefðbundna form af fræðslu- og söfnunarþætti, heldur skemmtilega nýjung þar sem skemmtidagskrá, þjóðþekktir Íslendingar og barátta UNICEF fyrir réttindum barna fléttast saman.

Lokaþátturinn verður svo söfnunarþáttur í beinni útsendingu á Íslandi þar sem áhorfendur fá tækifæri og hvatningu til að styðja við starf UNICEF.

Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri RÚV, er spenntur fyrir verkefninu.

„Þetta verður stórt og viðamikið verkefni sem verður mjög upplýsandi og þýðingarmikið og vonandi í leiðinni alveg stórskemmtileg sjónvarpsupplifun. Við höfum fulla trú á að úr geti orðið ferskt og frumlegt dagskrárefni en það sem hvetur okkur fyrst og fremst út í þetta samstarf er að fá þetta kærkomna tækifæri til að leggja ríflega af mörkum til að styðja við hið öfluga starf UNICEF út um allan heim,“ segir Skarphéðinn.

Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, er hæstánægður með samkomulagið.

„Starf UNICEF í Afríku sunnan Sahara er í sífelldri þróun og við hlökkum til að geta kynnt fjölbreytt verkefni sem bjarga lífum, auka réttindi og velferð barna og stuðla að varanlegum samfélagsbreytingum. Mikil þörf er á stuðningi við verkefni UNICEF á vettvangi og RÚV er besti samstarfsaðili sem völ er á til að koma þeim verkefnum á framfæri við almenning.“

Undirbúningur og þróun verkefnisins er nú þegar hafin. Framleiðsla á þáttunum hefst næsta sumar og stefnt er að sýningu þeirra haustið 2020.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn