11. apríl 2012
Safnað fyrir Sahel í Kringlunni!
Nýverið ómuðu fagrir fiðlutónar í Kringlunni. Þar var á ferð Ágústa Dómhildur Karlsdóttir fiðlusnillingur sem ákvað að leggja neyðarsöfnun UNICEF fyrir Sahel-svæðið lið með því að spila í Kringlunni. Gestir Kringlunnar tóku vel í söfnunina og gáfu alls 30 þúsund krónur. Ágústa afhenti UNICEF söfnunarféð á skrifstofunni í gær og er UNICEF henni þakklátt fyrir þetta skemmtilega framtak.
Fleiri
fréttir
21. október 2026
Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira20. október 2026
Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira16. október 2026
