Í tilefni af 50 ára afmæli sínu í sumar efndi Kristín S. Bjarnadóttir til Málþings um blæbrigði lífs og dauða, þar sem einn megintilgangurinn var að safna fé fyrir stríðshrjáð börn frá Sýrlandi. Árangurinn lét ekki á sér standa og söfnuðust alls 1.030.00 krónur.
Stríðið í Sýrlandi hefur staðið yfir í rúm sjö ár og þurfa mörg börn á neyðaraðstoð að halda, bæði í Sýrlandi og nágrannaríkjum. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður hefur UNICEF náð að veita milljónum barna lífsnauðsynlega neyðaraðstoð á borð við bólusetningar, aðgang að vatns- og hreinlætisaðstöðu, sálræna aðstoð og hjálp við að byrja aftur í skóla.
Kristín afhenti Eyrúnu Ingu Jóhannsdóttur, starfsmanni UNICEF á Íslandi, framlagið á sólríkum degi á Akureyri þann 6.júlí og með í för var Reem Almohammad, sýrlensk stúlka sem býr á Akureyri og var ein þeirra sem hélt tölu á málþinginu. Mjög áhugavert viðtal við Reem birtist á mbl.is á dögunum sem við mælum með að lesa, hér.
Við hjá UNICEF á Íslandi færum Kristínu, og öllum þeim sem komu að söfnuninni, kærar þakkir fyrir ómetanlegt framlag!

