25. október 2019

„Þið getið ekki ímyndað ykkur aðstæður barnanna okkar hér“

„Hvert sem við förum, þar er stríð,“ segir Kawthar. Hún er 25 ára gömul, móðir tveggja og hálfs árs stúlku sem heitir Barcham. Þær sitja í tjaldi í flóttamannabúðum í norðurhluta Írak þegar fulltrúar UNICEF settust niður til að ræða við þær á dögunum.

„Hvert sem við förum, þar er stríð,“ segir Kawthar. Hún er 25 ára gömul, móðir tveggja og hálfs árs stúlku sem heitir Barcham. Þær sitja í tjaldi í flóttamannabúðum í norðurhluta Írak þegar fulltrúar UNICEF settust niður til að ræða við þær á dögunum.

Mæðgurnar eru hluti af þeim þúsundum Kúrda og íbúa í norðausturhluta Sýrlands sem flúið hafa undan átökum þar yfir til Íraks. Íröksku landamærin eru ekki opin Sýrlendingum, fólki er smyglað inn við oft hættulegar aðstæður. Það er áhætta sem fólk er reiðubúið að taka, barnanna vegna.

Fyrir tveimur vikum áttu Kawthar og dóttir hennar heimili. Í dag búa þær í tjaldi og það rignir þennan tiltekna dag í síðustu viku. Vindurinn gnauðar um tjöldin allt í kring í Bardarash-búðunum. Kawthar og Barcham bjuggu í Serekaniye, einnig þekkt sem Ras Al-Ayn nærri tyrknesku landamærunum sem varð illa úti í hernaðaraðgerðum Tyrkja við innrásina þann 9. október síðastliðinn.

UNICEF áætlar að 176 þúsund manns, þar af 80 þúsund börn, hafi lent á vergangi við að flýja árásirnar í norðaustur Sýrlandi síðastliðnar vikur. Kawthar gleymir ekki þegar árásirnar hófust.

„Loftárásirnar áttu sér stað beint fyrir framan okkur. Ég greip dóttur mína og hljóp. Það eina sem við heyrðum voru sprengingar. Við fórum eina leið og þar varð sprenging. Við stoppuðum, grétum og vissum ekki hvert við áttum að fara.“

Líkt og er tilfellið með svo margar fjölskyldur síðustu vikur í norðausturhluta Sýrlands hafa Kawthar og fjölskylda hennar neyðst til að flýja oftar en einu sinni milli staða.

„Hvert sem við förum, þar er stríð. Við fórum til Darbasieh, við vorum í Hasakah-borg og alls staðar voru árásir. Engin undankomuleið.“

Kawthar tók því þá ákvörðun að flýja með dóttur sína yfir landamærin til Íraks en þar þarf oft að greiða fyrir að láta smygla sér yfir.

Kawthar segir að Barcham hafi grátið alla leiðina. Þegar þetta viðtal er tekið situr stúlkan róleg og hljóð í fanginu á móður sinni og heldur fastataki um kexköku í annarri hönd.

„Hennar vegna, varð ég að fara. Þið getið ekki ímyndað ykkur aðstæður barnanna okkar hér,“ segir Kawthar lágum rómi.

Það er kannski táknrænt fyrir aðstæður fólks frá Sýrlandi almennt að Kawthar skilur ekki spurningu okkar um hver hennar helsta von er fyrir dóttur sína. Þetta er vissulega ekki besti staðurinn til að spyrja um stóra drauma. Tjaldið sem þær mæðgur sitja í er tómt fyrir utan dýnu, lítinn bakpoka og smávegis af hjálpargögnum og matargjöfum í horninu.

„Eina sem ég tók með mér voru þrenn föt til skiptanna fyrir Barcham. Ég setti þau í bakpokann og svo hlupum við út.“

Síðan þá hafa hjálparsamtök, UNICEF og fleiri, útvegað þeim nauðsynjar og hreinlætisvörur svo fátt eitt sé nefnt.

Hamida Lasseko, fulltrúi UNICEF í Írak, segir að mörg barnanna sem nú búi í Bardarash hafi verið nýbyrjuð í skóla á ný þegar átökin brutust út.

„Þau þurftu að skilja allt sitt eftir og flýja. Þau eru hrædd og mörg hver í áfalli. UNICEF vinnur myrkranna á milli við að koma upp grunnþjónustu í búðunum. Þar á meðal kennslustofum og barnvænum svæðum þar sem börn geta verið örugg og fengið að leika sér. Þá veitum við börnum með sérþarfir það sem þau þurfa,“ segir Lasseko.

Bardarash-búðirnar höfðu staðið auðar í tvö ár þar til nýlega, en urðu til upprunalega árið 2015 fyrir írakskar fjölskyldur sem flúðu borgina Mósúl. Það eru rúmlega tvö þúsund manns þar núna og þar hjálpast nú allir að við koma upp tjöldum, taka rusl af jörðinni og annað tilfallandi.

Það er vonarglætan og Kawthar veit nú hver hennar helsta von, hennar heitasta ósk er fyrir dóttur sína. Allir foreldrar ættu að geta samsvarað sig við þær vonir.

„Ég vil að dóttir mín eigi hamingjusamt og gott líf án stríðs. Ég vil að dóttir mín hafi það gott og sé örugg. Það er allt sem ég vil. Ég vil ekkert annað.“

Grein: Giselle Hall og Zalala Ali fyrir UNICEF.

Þýðing: UNICEF á Íslandi.

Til að styrkja mikilvægt starf UNICEF á svæðinu og hjálpa börnum í neyð sendu SMS-ið STOPP í númerið 1900. (1.900 kr.)

Hægt er að leggja frjáls framlög inn á 701-26-102040 og kt. 481203-2950

Nánari upplýsingar um hvernig þú getur hjálpað börnum í Sýrlandi hér.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn