16. febrúar 2017

Sameiginleg áskorun Barnaheilla, UNICEF og umboðsmanns barna vegna frumvarps um breytt fyrirkomulag á áfengissölu

UNICEF á Íslandi, Barnaheill – Save the Children á Íslandi og umboðsmaður barna gagnrýna harðlega umrætt frumvarp og telja það ganga þvert á hagsmuni barna og brjóta gegn réttindum þeirra.

16. febrúar 2017

Nú er enn á ný til meðferðar frumvarp á Alþingi þar sem lagt er til að einkasala ÁTVR á smásölu áfengis verði aflögð. Í þetta sinn er auk þess gengið enn lengra og lagt til að heimilt verði að auglýsa áfengi hér á landi. UNICEF á Íslandi, Barnaheill – Save the Children á Íslandi og umboðsmaður barna gagnrýna harðlega umrætt frumvarp og telja það ganga þvert á hagsmuni barna og brjóta gegn réttindum þeirra.

Börn eiga rétt á þeirri vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst. Samkvæmt lögum er opinberum aðilum skylt að gera allar viðeigandi ráðstafanir, þar á meðal á sviði löggjafar, til þess að vernda börn gegn skaðlegum áhrifum áfengis.

Við hvetjum þingmenn til þess að kynna sér vel rannsóknir og afstöðu fagfólks á sviði heilbrigðis- og félagsmála til frumvarpsins. Þar kemur skýrt fram að afnám einkasölu ÁTVR og aukinn sýnileiki áfengis í auglýsingum, mun leiða til aukinnar áfengisneyslu, bæði meðal unglinga og fullorðinna. Er því ljóst að þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu munu hafa verulega neikvæðar afleiðingar í för með sér fyrir heilsu, þroska og öryggi barna.

Samkvæmt 3. gr. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem er hluti af íslenskum lögum, ber þingmönnum að setja hagsmuni barna í forgang þegar þeir taka ákvarðanir sem varða börn með einum eða öðrum hætti. Hagsmunir barna af því að njóta verndar gegn skaðlegum áhrifum áfengis eiga því að vega þyngra en önnur sjónarmið. Ef frumvarpið verður samþykkt brýtur það því gegn einni af grunnstoðum Barnasáttmálans.

Við skorum á þingmenn að virða mannréttindi barna, setja hagsmuni þeirra í forgang og hafna frumvarpinu.

Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi
Erna Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, Save the Children á Íslandi
Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna

Fleiri
fréttir

27. mars 2024

Níu ár af stríði í Jemen: Milljónir barna vannærð
Lesa meira

15. mars 2024

Þrettán ár af stríði í Sýrlandi: UNICEF aðstoðaði milljónir í fyrra en þörfin aldrei meiri
Lesa meira

13. mars 2024

Sögulegur árangur í baráttunni gegn barnadauða
Lesa meira
Fara í fréttasafn