04. febrúar 2005

Samkeppni einnar mínútu myndbanda

UNICEF vekur athygli á því að þann 1. mars er lokaskiladagur í hinni árlegu einnar-mínútu-myndbanda samkeppni. Ungmenni og fullorðnir frá öllum heimshornum geta tekið þátt. Vinnusmiðja einnar mínútu myndbanda var haldin hér á landi í október síðastliðnum en þá tóku 20 ungmenni frá öllum Norðurlöndunum þátt með glæsilegum árangri.

Myndböndin eru ein mínúta á lengd og geta fjallað um allt milli himins og jarðar. Það sem skiptir máli er að láta rödd sína heyrast og hafa áhrif! Nánari upplýsingar má sjá á unicef.org/voy/takeaction/takeaction_1690.html.

Annan hvern mánuð gefur UNICEF út rafrænt fréttabréf ungmenna þar sem raddir unga fólksins fá að heyrast. Fjórtánda tölublaðið “Hvað segir unga fólkið” var að koma út á vefsíðunni unicef.org/voy/news/. Kíktu á málið!

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn