Kvika banki og UNICEF á Íslandi hafa endurnýjað langtímasamstarf sitt um bankaþjónustu og stuðning við starf UNICEF. Samstarf aðilanna á sér langa sögu en Kvika hefur verið aðalsamstarfsaðili UNICEF á Íslandi á sviði bankaþjónustu frá árinu 2011.
Sem velunnari Heimsforeldra niðurgreiðir Kvika bankakostnað verkefnisins þannig að söfnunarfé Heimsforeldra nýtist enn betur til verkefna UNICEF í þágu réttinda og velferðar barna um allan heim. Kvika styður jafnframt við fjáröflun og starfsemi UNICEF á Íslandi með framlögum í Neyðarsjóð UNICEF sem gerir samtökunum kleift að bregðast hratt við þegar neyð skapast, s.s. vegna náttúruhamfara eða átaka.
Samstarfið felur jafnframt í sér að Kvika annast bankaþjónustu UNICEF á Íslandi, meðal annars vegna innheimtu styrkja og miðlunar fjármagns til hjálparstarfs UNICEF erlendis.
Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi:
„UNICEF á Íslandi hefur ávallt lagt höfuðáherslu á að fara vel með hverja krónu sem styrktaraðilar okkar treysta okkur fyrir. Það er ómetanlegt að hafa jafn traustan bakhjarl í bankaþjónustu eins og Kviku banka, sem tryggir hagstæðustu mögulegu kjör og þjónustu svo við getum hámarkað fjármagn í lífsbjargandi verkefni. Það er ánægjulegt að við séum enn á ný að endurnýja okkar farsæla samstarf svo við getum í sameiningu tryggt börnum um allan heim menntun, næringu, hreint vatn og öryggi.“
Anna Rut Ágústsdóttir, aðstoðarforstjóri Kviku banka:
„Samstarfið við UNICEF er okkur hjá Kviku mikilvægt og við erum stolt af því að hafa átt þátt í starfi samtakanna um langt árabil. UNICEF vinnur mikilvægt starf í þágu barna og með samstarfinu getum við nýtt okkar þekkingu og þjónustu til að styðja við það starf með áþreifanlegum hætti. Við hlökkum til að halda áfram góðu samstarfi við UNICEF á Íslandi.“

