Síðan www.sannargjafir.is fékk andlitslyftingu á dögunum svo nú er leikur einn að kaupa sanna gjöf og gefa í nafni einhvers nákomins. Sannar gjafir hafa aldrei verið vinsælli og ótal lífsnauðsynlegar gjafir, allt frá ormalyfi til vatnsdæla, verið afgreiddar á síðustu dögum. Hjálpargögnin sjálf eru svo send á vettvang en viðtakandinn fær í hendur gjafabréf með fallegri kveðju.
Hraðfréttamennirnir Benedikt Valsson og Fannar Sveinsson voru ekki í vandræðum með að velja sér sanna gjöf hjá UNICEF fyrir jólin: Fótbolta og vítamínbætt jarðhnetumauk.
„Það skiptir gríðarlega miklu máli að börn geti leikið sér. Slíkt hjálpar þeim mikið,“ segir Benedikt um fótboltann. Skemmtilegur fótboltaleikur hjálpar börnum á flótta að gleyma stund og stað – og gefur þeim tækifæri til að vera börn. Hann minnkar auk þess kvíða og dregur úr streitu.
„Að vera svangur er vont og það á ekkert barn að deyja úr hungri. Þessi gjöf bjargar einfaldlega lífi barna,“ segir Fannar um vítamínbætta jarðhnetumaukið sem hann ætlar augljóslega ekki að borða sjálfur. Maukið hefur valdið byltingu í meðferð við vannæringu og verður nú sent til aðframkominna barna sem þurfa á því að halda.
Menntun lykillinn að bjartari framtíð
Námsgögn hafa notið sérlegra vinsælda hér á landi í ár og ótal manns hafa keypt stílabækur og blýanta sem sannar gjafir UNICEF. Þeim hefur í kjölfarið verið komið til barna í neyð. Námsgögnin sem keypt voru í fyrra fóru að mestu til barna á flótta frá Sýrlandi og fátækra barna í Níkaragúa.
„Ein af grundvallarstoðunum í starfi UNICEF er að tryggja að öll börn njóti góðrar menntunar. Menntun er öflugasta vopnið gegn fátækt og hungri, stuðlar að lækkun barnadauða, er mikilvæg til að ná jafnrétti kynjanna – og er lykillinn að bjartari framtíð okkur öllum til heilla. Þess vegna er gaman að sjá hversu vinsæl námsgögnin hafa verið hér á landi,“ segir Sigríður Víðis Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi UNICEF á Íslandi.
Um er að ræða fjörutíu stílabækur og fjörutíu blýanta sem eru nauðsynlegur hluti af námi barna.
