Nú eins og síðastliðin jól eru Sannar gjafir UNICEF vinsælar í jólapakka landsmanna. Gjöfin er keypt í nafni þess sem þú vilt gleðja og UNICEF sér síðan til þess að koma hjálpargögnunum til barna þar sem þörfin er mest. Starfsfólk UNICEF á Íslandi keppist nú við að afgreiða þessar fallegu jólagjafir, og kveðjurnar á kortunum eru hverri fallegri.
Jólagjafir frá Íslandi bárust til barna um allan heim um síðustu jól. Í fyrra voru sem dæmi 70.550 skammtar af jarhnetumauki frá Íslandi sendir til barna meðal annars í Afganistan, Senegal og Bangladess. Ormalyf hjálpuðu börnum í Sýrlandi, Búrkína Fasó og Pakistan á meðan börn í Mjanmar, Sómalíu og Haítí fengu hreint drykkjarvatn þökk sé vatnshreinsitöflum sem voru keyptar í gegnum Sannar gjafir UNICEF. Þetta eru einungis örfá dæmi um gjafir sem ferðuðust til barna í neyð í fyrra og stefnir í að enn fleiri börn muni njóta góðs af Sönnum gjöfum frá Íslandi þetta árið.
Sannar gjafir UNICEF eru lífsnauðsynleg hjálpargögn fyrir börn í neyð. Þær eru stórsniðugar jólagjafir, leynivinagjafir og jólakort fyrir vini og fjölskyldu en mikið úrval í öllum verðflokkum má finna á www.sannargafir.is. Íslensku jólasveinarnir hafa líka uppgötvað hversu sniðugar gjafirnar eru í litla skó úti í glugga.
Í fyrra var mjög vinsælt að gefa hlý teppi, en þeim er meðal annars dreift í flóttamannabúðum þar sem börnum er kalt. Auk þess seldust 65 vatnsdælur, en ein vatnsdæla getur útvegað heilu þorpi drykkjarvatn og gjörbreytt lífi barna og fjölskyldna á svæðinu.
„Allar gjafirnar eiga það sameiginlegt að bæta líf barna sem þurfa á hjálp okkar að halda. Það er því yndislegt að sjá hvað almenningur og fyrirtæki hér á Íslandi láta sig heilsu og réttindi barna varða og hversu margir kjósa að gefa Sannar gjafir um jólin,“ segir Ingibjörg Magnúsdóttir hjá UNICEF á Íslandi.
Það tekur enga stund að versla jólagjafirnar í vefverslun UNICEF, www.sannargjafir.is. Einnig er hægt að kíkja á skrifstofu UNICEF á Íslandi á Laugavegi 176 og velja gjafir á staðnum og fræðast um hvernig gjafirnar koma að góðum notum.
Hér má sjá nokkur dæmi að góðum jólagjöfum sem bæta líf barna:
Hlýr vetrarfatnaður
Veturinn er kominn víða um heim og í mörgum flóttamannabúðum. Fyrir fjölskyldur á flótta getur verið erfitt að útvega hlý föt fyrir öll börnin. Hlýr vetrarfatnaður er nauðsynlegur á þessum tíma og mun þeim vera dreift í flóttamannabúðum þar sem kalt er í tjöldum og gámum um nætur.
Vatnshreinsitöflur galdra fram drykkjarhæft vatn
Milljónir barna hafa ekki aðgengi að hreinu drykkjarvatni eins og við erum vön hér heima. Vatnshreinsitöflur eru sendar á svæði þar sem hreint vatn er af skornum skammti. Þessar bráðsniðugu töflur geta á örskotsstundu galdrað fram drykkjarhæft vatn úr óhreinu vatni og með því komið í veg fyrir útbreiðslu lífshættulegra smitsjúkdóma.
Jarðhnetumauk gerir kraftaverk fyrir vannærð börn
Vítamínbætt jarðhnetumauk gegnir lykilhlutverki á svæðum þar sem börn eru í lífshættu vegna vannæringar, meðal annars í Bangladess, Mið-Afríkulýðveldinu og Jemen. Jarðhnetumaukið inniheldur öll nauðsynleg næringarefni, vítamín og steinefni sem börn þurfa og gerir kraftaverk fyrir vannærð börn. Það er tilbúið til neyslu beint úr pakkanum. Í flestum tilfellum þurfa börn einungis þrjá pakka á dag í fáeinar vikur til að ná fullum bata.


