Sérstök umræða um nýja skýrslu UNICEF á Íslandi og viðbrögð stjórnvalda við henni fór fram á Alþingi í hádeginu í dag. Hana má nálgast hér. Málshefjandi var Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, og Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, var til andsvara.
Oddný benti á að greining UNICEF á aðstæðum barna sem líða efnislegan skort væri afar mikilvæg og fór yfir helstu niðurstöður hennar. Hún sagðist leyfa sér að fullyrða að öllum sem á umræðurnar hlýddu fyndust niðurstöðurnar óásættanlegar. „En hvað ætlum við að gera?“ spurði hún og bað ráðherra um viðbrögð við niðurstöðunum.
Skýrslan var rædd fram og til baka og til umræðu kom meðal annars mikilvægi reglulegrar gagnaöflunar - sem UNICEF á Íslandi hefur lagt ríka áherslu á. Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, sagði meðal annars að UNICEF hefði bent á að ástæða væri til að skoða hvort keyra ætti greiningu Eurostat oftar. „Við munum taka það upp við Hagstofuna og heyra þeirra ráðleggingar varðandi hvort það sé rétt að gera þetta oftar en gert er í Evrópu,“ sagði hún.
Ásmundur Friðriksson þingmaður Sjálfstæðisflokksins benti á að Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna fæli í sér alþjóðlega viðurkenningu á að börn væru sjálfstæðir einstaklingar með fullgild réttindi og hann tryggði öllum börnum sérstaka vernd og umönnun. Jafnframt að hann hefði verið lögfestur hér á landi árið 2013.
„Til að öll börn fái notið réttinda sinna er nauðsynlegt að hafa vitneskju um hverjar ólíkar þarfir þeirra eru,“ sagði hann.
Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði að Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna hefði bent á að gott væri að safna gögnum um börn oftar og hefði nefnt að það myndi kannski kosta einhverjar nokkrar milljónir að gera slíkt. „Mig langar til að spyrja ráðherrann hæstvirtan: Er hún tilbúin til að beita sér fyrir því að þessir peningar komi til þess að það sé hægt að safna þessum upplýsingum oftar, einu sinni á ári eða kannski annað hvert ár?“ spurði hún.
Páll Valur Björnsson, þingmaður Bjartrar framtíðar sagðist skora á ráðherrann og ráðherrana alla að hafa nú Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem fyrsta lið á næsta ríkisstjórnarfundi. „Og nýta allan fundinn og ef með þarf alla fundi sína á þessu ári til þess að fara vandlega yfir það hvað þarf að gera til að gefa orðunum sem þar eru innihald, þá vigt þannig að um muni fyrir fátæk börn á Íslandi,“ sagði hann.
„Ég gæti bent þeim á að þau gætu strax byrjað á því að markvisst, reglulega og skipulega sé að því staðið að safna áreiðanlegum upplýsingum um stöðu og kjör barna hérna á landi. Því þannig og ekki öðruvísi getum við fengið skýra mynd af stöðu og þróun þessara mála. Ef við sjáum ekki vandann þá höfum við tilhneigingu til þess að láta eins og hann sé ekki til staðar. Við stingum bara höfðinu í sandinn. Og ef við sjáum ekki þróun vitum við ekki hvort við erum að ná viðeigandi árangri.
Páll Valur benti á að eftirlitsnefnd með Barnasáttmála Sameinuðu þjóanna hefði ítrekað bent íslenskum stjórnvöldum að þessi mál væru alls ekki í lagi hjá þeim.
Elín Hirst, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lagði áherslu á að tölur sem snertu hag barna yrðu aðgengilegar árlega frá Hagstofu Íslands. „Það er ekki gert nú og eftir því sem ég kemst næst kostar það tiltölulega lítið að bæta við spurningum í lífskjararannsókn Hagstofunnar sem snerta hag barna og ungmenna. Ég skora hér með á hæstvirtan velferðaráðherra og forsætisráðherra sem er ráðherra Hagstofu að beita sér fyrir því að þetta verði tekið upp strax,“ sagði Elín.
Úr umræðunum:
Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar: Greining UNICEF er afar verðmætt tæki sem stjórnvöld geta notað til að átta sig á hvert helst á að beina stuðningi við fjölskyldurnar í landinu.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs: Fátækt er samfélagsmein. Afleiðingar þess að alast upp við fátækt geta haft víðtæk áhrif á börn og skert framtíðarmöguleika þeirra.
Páll Valur Björnsson, þingmaður Bjartrar framtíðar: Þó að víða í heiminum þurfi börn að þola enn meiri fátækt og mismunun en hér á landi er það hreint engin afsökun fyrir okkur. Okkar er ábyrgðin og okkar er skömmin. Og okkar er skyldan að bregðast ekki þessum börnum.
Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins: Til að öll börn fái notið réttinda sinna er nauðsynlegt að hafa vitneskju um hverjar ólíkar þarfir þeirra eru. Fyrir mér skiptir mestu máli að við höfum það eina markmið að ekkert barn á Íslandi búi við fátækt eða skort. Eitt barn er of mikið í því sambandi.
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata: Það er verið að brjóta á mannréttindum barna en það eru engin viðurlög.
Willum Þór Þórsson, þingmaður Framsóknar: Við eigum ekki að sætta okkur við þessa stöðu.
Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri grænna: Óþolandi fátækt alltof margra barna. Sex þúsund börn á aldrinum 1-15 ára líða efnislegan skort í þessu ríka samfélagi og þar af 1600 mjög alvarlegan skort.
Elín Hirst, þingmaður Sjálfstæðisflokksins: Eitt barn sem líður skort á Íslandi er einu barni of mikið. Ég vil að við Íslendingar setjum markið afar hátt gagnvart börnum og ungmennum þessa lands.



