29. maí 2017
Sigríður Thorlacius ferðaðist til Bangladess á dögunum sem sjálfboðaliði fyrir UNICEF til að kynna sér starfsemi samtakanna þar í landi. Heimsóknin var í tilefni af degi rauða nefsins sem verður á RÚV föstudaginn 9. júní. Í samtali við Vísi segir hún að dvölin hafi breytt henni til frambúðar.
Í Bangladess eru börn um 40% af heildar íbúafjölda landsins, eða um 57 milljónir. Helmingur þeirra lifir undir fátækramörkum og fleiri en eitt af hverjum tíu barna eru hneppt í þrælkunarvinnu. Mörg þeirra vinna mjög erfiða og jafnvel stórhættulega vinnu. Börn í þrælkunarvinnu eru einnig afar berskjölduð gagnvart annars konar misnotkun og ofbeldi.
Sigríður heimsótti Dakka, höfuðborg og jafnframt stærstu borg Bangladess. Þar búa um 17 milljónir manna. Hún segir að ekkert hefði getað undirbúið sig undir það sem hún varð vitni að í borginni.
„Ég sá vegalaus börn, börn í þrælkunarvinnu og veik börn. Ég var aðallega að hitta og tala við börn og hitti til dæmis börn sem unnu í múrsteinaverksmiðju sem var aðeins fyrir utan borgina og börn sem unnu í skóverksmiðju. Það tók á,“ segir Sigríður. „Það fór allt í smá graut í hausnum á mér. Við erum neytendur og kannski ekki meðvituð um hvernig allt verður til sem við kaupum. Þetta er ógeðslegt. Lítil börn að vinna erfiðisvinnu í skít og ömurlegum aðstæðum. Maður frýs bara.“
Mikill fjöldi barna býr á götunni í Dakka. Mörg þeirra hafa týnt foreldrum sínum og eru afar berskjölduð gagnvart misnotkun, þrælkunarvinnu og mansali. Algengt er að börn séu týnd í kerfinu þar sem skráningu fæddra barna er afar ábótavant.
Sigríður heimsótti athvarf fyrir stúlkur sem ætlað er að veita stúlkum sem annars byggju á götunni húsaskjól, fæði og umönnun. Athvarfið er starfrækt af UNICEF, sem heldur einnig úti sams konar athvörfum fyrir drengi.
Hún segir gott að vera vitni að starfi UNICEF í Bagladess. „Það gaf mér von að verða vitni að þessu góða starfi. Þetta var eiginlega bara brjálæðislega fallegt í þessu öllu saman.“ Sjálf hefur hún verið heimsforeldri í áratug. „Ég hef aldrei séð eftir því að styðja samtökin en þarna sá ég þetta með eigin augum, hvert mínir peningar fara. Sem heimsforeldri get ég bætt líf barna í þeirra stöðu. Ég er mjög þakklát því að hafa fengið að sjá uppbyggilegt starf UNICEF.“
Með degi rauða nefsins vill UNICEF skemmta fólki en um leið vekja athygli á að heimsforeldrar og UNICEF berjast saman fyrir betri heimi fyrir öll börn. Dagur rauða nefsins er langstærsti viðburður ársins hjá UNICEF á Íslandi og nær hámarki í beinni útsendingu á RÚV föstudaginn 9. júní.



