Í vikunni kvöddum við samstarfskonu okkar til margra ára, hana Sigríði Víðis Jónsdóttur (Siggu) sem hefur verið kynningarsjóri UNICEF á Íslandi frá árinu 2011. Hún hefur nú verið ráðin aðstoðarkona Guðmundar Inga Guðbrandssonar, umhverfisráðherra. Til hamingju með það Sigga, Guðmundur og náttúra Íslands!
Hún Sigga okkar kom til UNICEF á Íslandi með brjálaða jafnréttishugsjón og réttlætiskennd og hefur gegnt lykilhlutverki í baráttunni fyrir réttindum barna heimsins. Það eru ófá verkefnin sem Sigga hefur tekið þátt í og drifið áfram af sinni einstöku skipulagshæfni og mikla baráttuanda - neyðarsafnanir fyrir börn í Jemen, Nígeríu og Sýrlandi, fórnarlömb fellibylsins Hayan og jarðskjálftans í Nepal, komið röddum og sögum barna um allan heim til almennings í gegnum fjölmiðla og Dag rauða nefsins og frætt heimsforeldrana okkar um allan þann árangur sem hlýst af baráttunni sem þeir taka þátt í fyrir börn á hverjum einasta degi.
Sigga hefur einnig beitt sér fyrir réttindum barna hér á landi og meðal annars ritstýrt tveimur stórum skýrslum sem hafa haft mikil áhrif á íslenskt samfélag – Réttindi barna á Íslandi: Börn sem líða efnislegan skort og Réttindi barna á Íslandi: Ofbeldi og forvarnir.
Þó að við hjá UNICEF á Íslandi kveðjum Siggu með söknuði þá hlýnar okkur við að vita að hún mun halda áfram að nýta sinn einstaka kraft í að gera heiminn betri fyrir okkur öll.


