Sjö spurningar sem allir nýir foreldrar spyrja: Örnámskeið í uppeldi
Þúsundir spurninga sækja að nýjum foreldrum varðandi það hvernig þeir geti best veitt barni sínu farsælt upphaf. Við spurðum Frank Oberklaid, prófessor og forstöðumann miðstöðvar um lýðheilsu barna á Konunglega barnaspítalanum í Melbourne og alhliða barnasérfræðing, nokkura þeirra.
„Vissir þú að minni barnsins þíns þroskast frá því að það er jafnvel bara tveggja eða þriggja vikna? Barn sem er jafnvel bara tveggja eða þriggja vikna man eftir lyktinni af þér. Þið hafið spurt mig fjölda spurninga sem margir foreldrar hafa um uppvöxt ungra barna sinna og ég er hér til að svara þeim. Hæ. Ég heiti prófessor Frank Oberklaid og þetta er örnámskeið mitt í uppeldi.“
Frank Oberklaid
Af hverju sofa smábörn svona mikið?
Smábörn vita ekki að normið er að sofa á nóttunni og vaka á daginn. Þau sofa í lúrum sem eru yfirleitt þrír til fjórir tímar í einu, vakna til þess að nærast og fara svo aftur að sofa.
Á meðan heili þeirra þroskast hafa þau ástæðu til þess að sofa ekki, því það er ýmislegt sem vekur forvitni þeirra. Þau eru að virða fyrir sér heiminn, foreldrar þeirra eru að spjalla við þau og lesa fyrir þau. Þannig þróa þau með sér fyrirsjánlegt mynstur lengri vöku þar sem þau eiga samskipti við heiminn, foreldra sína og umönnunaraðila og sofna svo aftur á milli.
Er hægt að örva heila barns á meðan það er enn í móðurkviði?
Um tíma, fyrir nokkrum árum, var haldið að það gerði börn gáfaðri að vera útsett fyrir klassískri tónlist.
Það er ekkert sem raunverulega sýnir fram á það að börn verði gáfaðri af því að hlusta á klassíska tónlist.
Á hinn bóginn sakar það örugglega ekkert. Það er þannig frábær hugmynd fyrir foreldra að spila tónlist inni á heimilinu þar sem tónlist hefur róandi áhrif á fullorðna og sú ró smitar út frá sér til ungabarnsins og róar það fyrir vikið líka.
Það eru þannig fjölmargar ástæður fyrir því að tónlist geti verið jákvæð fyrir ungabörn, en að öðlast aukna greind er ekki ein af þeim.
Hvaða áhrif hefur næring á þroska?
Ungabarn fær öll nauðsynleg næringarefni úr brjóstamjólk og við teljum það afar mikilvægt að mæður reyni að gefa brjóst.
Eftir það kemur hættulegt tímabil fyrir sum börn í ákveðnum löndum þar sem er mataróöryggi. Þegar gæði og fjölbreytileiki eru ekki til staðar, þegar það er ekki nægur matur til.
Þetta getur leitt bæði til vitrænnar seinkunar — það er að segja, barnið dregst aftur úr í andlegum þroska- en líka líkamlegrar seinkunar.
Afhverju þurfa börn snertingu?
Það eru nokkuð áreiðanlegar rannsóknir sem sýna fram á mikilvægi snertingar hjá ungabörnum, ekki bara hjá mennskum nýburum, heldur raunar hjá öllum dýrategundum.
Við tölum stundum um „kengúru-ummönnun“, um að leggja nýfætt barn á móður sína mjög snemma og það er róandi fyrir barnið, en það er líka róandi fyrir móðurina. Af margvíslegum ástæðum er snerting þannig gífurlega mikilvæg.
Hversu mikið ættir þú að eiga í virkum samskiptum við barn þitt?
Börn eru forvitin að eðlisfari. Þau vilja kanna umhverfi sitt. Allt er svo nýtt. Heimurinn er stór og foreldrar ættu ekki að standa í vegi fyrir því. Það sem þau ættu hinsvegar að gera er að tryggja að barnið sé fullkomlega öruggt.
Ekki reyna að búa til of mikinn strúktúr fyrir barnið. Það eru þó mörg tækifæri til þess að læra. Syngdu til dæmis fyrir barnið, lestu fyrir það, farðu með það í stuttan göngutúr: „Þarna er tré, þarna er hundur, þarna er bíll, þarna er hús.“
Það er fullt af svona hlutum, en ekki vera fyrir barninu, því börn eru eðlislægt mjög forvitin.
Hvernig eigum við að nálgast og ýta undir málþroska?
Þegar barnið byrjar að læra orð, einfalda hluti eins og „datt“, „bæbæ“, „kisa“ o.s.frv. geta foreldrar ýtt undir það með því að herma eftir barninu.
Ung börn elska endurtekningu, þannig að með því að heyra sama lagið aftur og aftur, lesa sömu bókina aftur og aftur læra þau um innbyggð mynstur tungumálsins. Við hvetjum foreldra þess vegna til þess að tala mikið við börnin sín og syngja mikið fyrir þau.
Reynið þó að yfirtaka ekki samtalið. Passið ykkur að skiptast á. Við köllum þetta stundum „fram og til baka“. Barnið segir eitthvað, foreldrið segir eitthvað. Að spegla það sem barnið segir reglulega er mjög mikilvægt.
Hver er besta leiðin til þess að kenna barni sínu mismunandi tungumál?
„Ég held að það sem sé mikilvægt er að það sé einhver stöðugleiki, svo að aðstæðurnar séu ekki ruglandi fyrir barnið. Stundum virkar að eitt foreldri tali alltaf eitt tungumál. Stundum virkar að ákveðið tungumál sé alltaf talað í ákveðnum aðstæðum. Á endanum koma börn alltaf til með að finna út úr hlutunum og læra að nota bæði tungumálin á viðeigandi tímum.“
Á þessum fyrstu árum þurfa börn að umönnunaraðilar svari þörfum þeirra. Þau þurfa uppbyggjandi umhverfi. Þau þurfa foreldra sem eru stilltir inn á þarfir þess. Foreldrar eru fyrstu kennarar barna sinna.
Það fer fram einhverskonar lærdómssprenging hjá börnum á meðan foreldrar þeirra tala við þau, syngja fyrir þau og lesa fyrir þau. Það myndast allskonar tengingar í heilanum. Þessi lærdómsgrunnur á þessum fyrstu árum er nauðsynlegur því hann er grunnur lífstíðar af lærdómi.
Ef foreldrar sjá fyrir öllu þessu þroskast heili barnsins og dafnar og kemur til með að öðlast þá velgengni sem við óskum fyrir börn okkar.
Frank Oberklaid, prófessor og forstöðumaður miðstöðvar um lýðheilsu barna á Konunglega barnaspítalanum í Melbourne og Murdoch rannsóknarsetursins um börn.
