04. maí 2016

Skákmaraþon Hrafns í þágu sýrlenskra barna

Hrafn Jökulsson mun tefla í hvorki meira né minna en 30 klukkustundir og skorar á alla, sem leggja vilja brýnum málstað lið, að tefla eina lauflétta hraðskák.

Dagana 6. og 7. maí mun Hrafn Jökulsson tefla skákmaraþon í Ráðhúsinu og safna framlögum og áheitum, sem renna óskert til Fatimusjóðs og UNICEF á Íslandi í þágu sýrlenskra flóttabarna í neyð.

Alls teflir Hrafn í 30 klukkustundir og skorar á alla, sem leggja vilja brýnum málstað lið, að koma í Ráðhúsið og tefla eina lauflétta hraðskák. Athugið að skákkunnátta er ekki skilyrði.

Það eru Hrókurinn og Skákakademía Reykjavíkur, sem standa að viðburðinum í samvinnu við Fatimusjóð og UNICEF á Íslandi. Hver skák tekur að hámarki 10 mínútur. Hér má sjá viðburðinn á Facebook.

Á staðnum verður hægt að kaupa bækur, póstkort og vöfflur til styrktar góðu málefni. Skemmtikraftar og listamenn troða upp á meðan maraþoninu stendur.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn